Leitarheimild byggði á löngu afsönnuðum ásökunum um svindl Samúel Karl Ólason skrifar 11. febrúar 2026 16:02 Andrew Bailey, einn æðsti stjórnandi FBI, í Fulton-sýslu, þar sem útsendarar Alríkislögreglunnar gerðu húsleit hjá kjörstjórninni. AP/Mike Stewart Útsendarar Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) studdust við gamlar og í mörgum tilfellum löngu afsannaðar ásakanir um kosningasvindl í Georgíu í kosningunum 2020 þegar húsleit var nýverið gerð hjá kjörstjórn Fulton-sýslu. Rætur rannsóknarinnar má rekja til embættismanns í Hvíta húsi Donalds Trump sem hefur áður reynt að hjálpa forsetanum að snúa úrslitum kosninganna 2020, þegar Trump tapaði fyrir Joe Biden.
Tulsi Gabbard, yfirmaður leyniþjónusta Bandaríkjanna, tók þátt í húsleitinni hjá kjörstjórninni þar sem hald var meðal annars lagt á kjörseðla frá 2020. Hún er sögð leiða vinnu Hvíta hússins varðandi það að reyna að sanna að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað Trump sigur árið 2020. Sjá einnig: Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Síðan hann tapaði kosningunum hefur Trump, eins og áður segir, ítrekað haldið því fram að umfangsmikið svindl hafi kostað hann sigur. Þetta hefur hann sagt í einrúmi við ráðgjafa sína og aðra en hann hefur einnig ítrekað haldið þessu fram á almannafæri og á opinberum viðburðum. Hann hefur oft lagt sérstaka áherslu á Georgíu, þar sem tiltölulega lítill munur var á honum og Biden, eða tæplega tólf þúsund atkvæði. Sjá einnig: Trump bað kosningaeftirlitsmann í Georgíu að „finna svindlið“ Fjölmargar rannsóknir hafa þó ekki sýnt fram á að svindl sem hafi skipt máli hafi átt sér stað. Trump var ákærður af yfirvöldum í Georgíu vegna tilrauna hans til að breyta úrslitum kosninganna þar en ákæran var að endingu felld niður. Reyndi að snúa úrslitunum en vinnur nú við „kosningaöryggi“ Nú hefur umsókn um leitarheimild sem fengin var vegna húsleitarinnar verið opinberuð en AP fréttataveitan segir að þar sé vísað í margar ásakanir sem hafi áður verið ítrekað varpað fram og margsinnis verið afsannaðar í endurtalningum, rannsóknum og dómsmálum. Þar að auki hafi fyrrverandi dómsmálaráðherra Trumps hafnað því alfarið að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað Trump sigur. Sjá einnig: Tóku Trump upp ef hann segði ósatt frá, sem hann svo gerði Það var maður sem heitir Kurt Olsen sem kom málinu fyrst á borð FBI en hann var áður ráðgjafi Trumps og bandamanna hans í tengslum við fjölda lögsókna þeirra vegna forsetakosninganna 2020. Trump-liðar töpuðu öllum þeim dómsmálum. Nú starfar Olsen sem „framkvæmdastjóri kosningaöryggis og heillinda“ innan Hvíta hússins, samkvæmt leitarheimildarumsókninni. Hann mun spila stóra rullu í þeirri viðleitni Trump-liða að finna vísbendingar um kosningasvindl 2020. Í umsókninni er ekkert vísað til mögulegra utanaðkomandi afskipta af kosningunum og vekur það enn frekari spurningar um aðkomu Gabbards að húsleitinni. Nokkrar rannsóknir sýndu ekki fram á svindl Embættismenn í Fulton-sýslu hafa gagnrýnt húsleitina verulega. Í gær ítrekuðu þeir að hún hefði verið framkvæmd á grunni afsannaðra samsæriskenninga og að þeir myndu beita öllum þeim brögðum sem þeir búa yfir til að standa vörð um heillindi kosninga í sýslunni. Í áðurnefndri umsókn um leitarheimild er vísað til þess að kvillar hafi verið á atkvæðatalningu í Fulton-sýslu og að kjörstjórn hafi viðurkennt að allir kjörseðlar hafi ekki verið skannaðir við talningarnar sem framkvæmdar voru og að einhverjir hafi verið skannaðir oftar en einu sinni. Þá segir þar að hafi það verið gert vísvitandi sé um lögbrot að ræða. Þar er þó einnig vísað til þess að nokkrar rannsóknir hafi verið gerðar á framkvæmd kosninganna og talninga og þær hafi ekki sýnt fram á að eitthvað hafi verið gert rangt eða farið úrskeiðis. Samkvæmt AP fréttaveitunni hafa þrjár rannsóknir verið gerðar. Ein var gerð af innanríkisráðuneyti Georgíu, önnur af óháðum aðilum og þar að auki hafi kjörstjórnin gert eigin rannsókn að kröfu ríkisþings Georgíu, þar sem Repúblikanar eru í meirihluta. Niðurstöður allra voru að miklu leyti sambærilegar. Þær sýndu fram á skipulagsleysi og óreiðu við framkvæmd kosninganna en sýndu ekki fram á glæp, misferli eða svik. Síðan þá hefur verið gripið til ýmissa umbóta sem ríkisþingið segir hafa gengið vel og skilað árangri. Útsendarar FBI við húsleitinga í Fulton-sýslu.AP/Mike Stewart Óttast að ásakanir verði notaðar sem átylla Demókratar og fleiri óttast að Trump og Repúblikanar ætli sér að nota þessar ásakanir um svindl sem átyllu til að reyna að hafa áhrif á niðurstöður þingkosninga í nóvember. Sjá einnig: Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Eftir að húsleitin var gerð í Georgíu hélt Trump því fram enn og aftur að kosningasvindl hefði kostað hann sigur. Þessa lygi notaði Trump til að halda því fram í viðtalinu að Repúblikanar ættu að „þjóðnýta“ þingkosningarnar í nóvember og taka þar með völdin til að halda utan um kosningar af ríkjum Bandaríkjanna. Trump sagði einnig í viðtalinu að hann hefði sigrað í einhverjum ríkjum 2020 þar sem úrslitin hefðu ekki sýnt það og vísaði sérstaklega til Georgíu. Samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna er það í höndum ráðamanna hverra ríkja vestanhafs að halda utan um kosningar þar. Eins og bent er á í grein Washington Post veitir stjórnarskráin ekki forseta vald þegar kemur að kosningum. Þá hafa Repúblikanar um árabil talað fyrir því að tryggja réttindi stakra ríkja í Bandaríkjunum gegn öflugri alríkisstjórn.
Bandaríkin Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 Þingkosningar í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Lucy Harrison, 23 ára bresk kona frá Warrington í Cheshire, var skotin til bana þann 10. janúar í fyrra þegar hún var í heimsókn hjá föður sínum í Prosper, nærri Dallas í Texas í Bandaríkjunum. Faðir Harrison er sagður hafa skotið dóttur sína í bringuna með þeim afleiðingum að hún lést, eftir að feðginin hafi átt í rifrildi um Donald Trump Bandaríkjaforseta. 11. febrúar 2026 10:13 Mest lesið Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Veður „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Innlent Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Innlent Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Erlent Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Innlent Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Innlent „Við megum vera vond við börn“ Innlent „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Innlent Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Veður Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Erlent Fleiri fréttir Gengst nú við að gaspra í Rússa Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Á rúntinum með andefni Danir ganga að kjörborðinu í afar spennandi kosningum Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Sakar Orbán og félaga um landráð Íranir segja engar viðræður við Trump-liða eiga sér stað Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Líklegt að Rasmussen verði í oddastöðu eftir kosningar Eigandi OnlyFans látinn Gerir hlé á árásum á Íran Lionel Jospin er látinn Kveikt í sjúkrabílum Gyðinga í London Ungverjar út í kuldann vegna leka til Rússa LaGuardia lokað vegna áreksturs við slökkviliðsbíl Sósíalistinn Grégoire nýr borgarstjóri Parísar Trump og Starmer ræddu Hormuz-sund „Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Robert Mueller er látinn Telja Musk hafa vísvitandi ýtt undir gerð kynferðislegra djúpfalsana Íhugar að draga úr hernaði í Íran Stöðvuðu annað meint skuggafley Rússa á Miðjarðarhafi Einn helsti samstarfsmaður Berlusconi látinn Stjórnvöld sögð skoða hernám eða umsátur um Kharg-eyju Formaður systurflokks Sjálfstæðisflokksins vill Noreg í ESB Sjá meira
Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Lucy Harrison, 23 ára bresk kona frá Warrington í Cheshire, var skotin til bana þann 10. janúar í fyrra þegar hún var í heimsókn hjá föður sínum í Prosper, nærri Dallas í Texas í Bandaríkjunum. Faðir Harrison er sagður hafa skotið dóttur sína í bringuna með þeim afleiðingum að hún lést, eftir að feðginin hafi átt í rifrildi um Donald Trump Bandaríkjaforseta. 11. febrúar 2026 10:13