Mbappé á skotskónum í fyrsta sigrinum undir stjórn Arbeloa Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. janúar 2026 14:55 Kylian Mbappé er langmarkahæstur í spænsku úrvalsdeildinni. getty/Jose Breton Real Madrid vann sinn fyrsta sigur undir stjórn Álvaros Arbeloa þegar liðið hafði betur gegn Levante, 2-0, í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Arbeloa tók við Real Madrid eftir að Xabi Alonso var látinn taka pokann sinn í síðustu viku. Hann fékk enga draumabyrjun í nýju starfi því Real Madrid tapaði fyrir B-deildarliði Albacete, 3-2, í spænsku bikarkeppninni á miðvikudaginn. Real Madrid tókst ekki að skora í fyrri hálfleik gegn Levante en Kylian Mbappé kom liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu á 58. mínútu. Hann hefur skorað nítján mörk í nítján deildarleikjum á tímabilinu. Á 65. mínútu skoraði Raúl Acensio annað mark Real Madrid með hörkuskalla eftir hornspyrnu frá Arda Güler. Með sigrinum minnkaði Real Madrid forskot Barcelona á toppi deildarinnar niður í eitt stig. Barcelona sækir Real Sociedad heim á morgun. Levante er í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar en liðið hefur aðeins unnið þrjá af nítján leikjum sínum í vetur. Spænski boltinn