Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2026 13:43 Víkingar og Blikar hafa marga hildina háð síðustu ár og nú byrjar allt strax í fyrstu umferðinni. Vísir/Diego Íslandsmeistarar síðustu fimm ára, Víkingur og Breiðablik, munu mætast í fyrstu umferð Bestu deildar karla í fótbolta á komandi sumri.
Opnunarleikurinn fer fram 10. apríl en umferðin klárast svo með fimm leikjum tveimur dögum síðar eða 12. apríl. Deildin er að byrja aðeins seinna en síðustu ár en sumarið 2025 var fyrsti leikur 5. apríl og árið áður byrjaði deildin 6. apríl. Upplýsingar um leiki sumarsins koma fram á heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands þar sem birtust drög að niðurröðun leikja í Bestu deild karla og kvenna. Aðrir leikir í fyrstu umferðinni eru eftirtaldir: KR-Keflavík, Valur-Þór, ÍBV-FH, KA-Stjarnan og Fram-ÍA. Fyrsti Akureyrarslagurinn í efstu deild í langan tíma verður þegar Þórsarar fá KA-menn í heimsókn 2. maí. Í lokaumferðinni fyrir úrslitakeppnina taka Íslandsmeistarar Víkings á móti Fram, ÍA fær KR í heimsókn, Þórsarar taka á móti FH-ingum, Valsmenn sækja Keflvíkinga heim, KA tekur á móti Blikum og Stjarnan fær Eyjamenn í heimsókn í Garðabæinn. Nýliðar Keflavíkur, Þórsarar, FH-ingar og Skagamenn spila öll tvo fyrstu leiki sína á útivelli en þau spila heimaleiki sína á náttúrulegu grasi. Fram, KR, KA og Valur byrja mótið aftur á móti á tveimur heimaleikjum. Þrjár síðustu umferðirnar í úrslitakeppni Bestu deildarinnar fara fram eftir nýja langa landsleikjahléð og fara því engir leikir fram í deildinni frá 21. september til 8. október. Það verður einnig landsleikjahlé frá 31. maí til 14. júní. Það verður aftur á móti ekkert hlé á meðan heimsmeistaramót karla stendur yfir frá 11. júní til 19. júlí. Deildarkeppni Bestu deildar karla fer fram frá 10. apríl til 6. september en úrslitakeppni karla fer fram frá 13. september til 25. október. Drögin í Bestu deild karla má finna hér en drögin í Bestu deild kvenna eru aðgengileg hér. Íslandsmeistarar Breiðabliks fá Þróttara í heimsókn í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna 24. apríl en á sama tíma mætast Víkingar og Stjörnumenn í Víkinni. Fyrsta umferðin klárast svo með þremur leikjum daginn eftir eða eftirtöldum leikjum: Fram-ÍBV, Valur-Grindavík/Njarðvík og Þór/KA-FH. Fyrsta umferð kvenna hefst því strax eftir landsleikjahlé í apríl en annað landsleikjahlé er síðan frá 30. maí til 13. júní. Deildarkeppni Bestu deildar kvenna fer fram frá 24. apríl til 29. ágúst en úrslitakeppni kvenna fer fram frá 6. september til 4. október.
Besta deild karla Besta deild kvenna Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira