Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Agnar Már Másson skrifar 21. desember 2025 23:33 Áfrýjunardómurinn í Borgarþingi sýknaði manninn. wikipedia commons Norskur maður á þrítugsaldri sem hafði verið sakfelldur fyrir nauðgun hefur nú verið sýknaður eftir að dómstólar tóku aftur upp málið. Sérfræðingar mátu svo að maðurinn kynni að hafa sjaldgæfa svefnröskun er nefnist sexómnía og er fólgin í því að fólk sýni kynferðislega hegðun í svefni.
Norska ríkisútvarpið, NRK, greinir frá þessu en þar kemur fram að maðurinn hafi verið sakfelldur fyrir svefnnauðgun og sat í fangelsi frá ágúst 2023 til júní 2024. Honum var einnig gert að greiða konunni skaðabætur upp á 70 þúsund norskar krónur, sem nemur 867 þúsundum íslenskra króna. Maðurinn hafði ítrekað neitað sök og óskað eftir endurupptöku málsins. Skimaður fyrir sexomníu Að lokum var málið aftur tekið upp eftir að hann var greindur með sexómníu. Samkvæmt dómnum er maðurinn sagður hafa notað hönd sofandi konu til þess að fróa sér. Verknaðurinn mun hafa staðið yfir í tíu sekúndur. Þetta mun hafa átt sér stað í Björgvin árið 2016. Sjá einnig: Hvað er sexómnía? Nú hafa bæði ákæruvaldið og dómstóllinn komist að þeirri niðurstöðu að efi sé uppi um að hann hafi verið vakandi þegar þetta gerðist. Maðurinn hefur nú verði rannsakaður með tilliti til fjölda svefnraskana, þar á meðal sexomníu. Þetta kemur fram í sýknunni frá áfrýjunardómi Borgarþings í Noregi. Sexsomnia lýsir sér þannig að manneskja sýnir kynferðislega tilburði eða kynferðislega hegðun í svefni sem hún man ekki eftir þegar hún vaknar. Dómkvaddir matsmenn vildu meina að það væri óljóst hvort gjörðir mannsins væru af völdum sexomníu eða ekki. Ekki sannað að hann hafi verið vakandi á verknaðarstundu Aftur á móti, eftir að hafa hlýtt á fleiri sérfræðinga og fleiri vitni, komst áfrýjunardómstóllinn í Gulaþingi að þeirri niðurstöðu að það væri ekki hægt að útiloka að verknaðurinn hefði verið framinn í svefni og að það hefði ekki verið gert með ásettu ráði. Hann var því sýknaður nú í desember. NRK hefur eftir verjanda mannsins að honum sé létt. „Hann hefur setið í fangelsi fyrir þetta og greitt skaðabætur. Það að málið hans sé tekið upp ða nýju og að vera sýknaður er léttir sem er honum erfitt að lýsa,“ segir verjandinn Erik Johan Mjelde.
Kynferðisofbeldi Noregur Svefn Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira