Aðalfyrirsæta í herferð 66°Norður 99 ára gömul Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. september 2025 19:01 Ólafía Sigurrós stillir sér upp fyrir ljósmyndarann Ara Magg sem skaut herferðina. 66°Norður Ólafía Sigurrós Jónsdóttir er aðalfyrirsæta í nýjustu herferð 66°Norður. Það er ekki í frásögur færandi nema hvað Ólafía er 99 ára gömul sem gerir hana að elstu fyrirsætu landsins og án efa eina af elstu fyrirsætum heims.
Ólafía er fædd árið 1926 á Suðureyri við Súgandafjörð á norðanverðum Vestfjörðum, dóttir skipstjóra og húsfrúar og ólst hún jafnframt þar upp. Taugin milli Ólafíu og 66°Norður er sterk því sama ár og Ólafía fæddist var fyrirtækið stofnað í bænum. Rætt um tökuna yfir kaffibolla og aðeins verið að laga hárið.66°Norður Eftir að hafa alið manninn á Suðureyri flutti Ólafíu sem ung kona til Reykjavíkur til að fara í skóla. Hún útskrifaðist sem leikskólakennari og starfaði við það sinn starfsferil. „Við ákváðum að fá Ólafíu til liðs við okkur þegar við komumst að því að hún deilir bæði aldri og uppruna með 66°Norður,“ segir Hanna Harpa Agnarsdóttir, markaðssérfræðingur hjá 66°Norður, um herferðina. Aðeins verið að skoða afraksturinn.66°Norður „Þetta hefur verið mjög skemmtilegt verkefni og Ólafía hefur staðið sig ótrúlega vel í myndatökum og fyrirsætustörfum. Henni hefur fundist þetta gaman og sérstaklega tenging hennar og fyrirtækisins við Suðureyri,“ segir hún jafnframt um herferðina sem fer í loftið núna í kvöld. Ólafía segir hreyfinguna lykilþátt í langlífinu.66°Norður Útivist og hreyfing mikilvæg Ólafía segist leggja áherslu á mikilvægi þess að nýta útivist og hreyfingu til þess að halda heilsu. „Ég fer út að ganga á hverjum og degi og svo förum við í morgunleikfimi, það er góð hreyfing. Það er bara nauðsynlegt til að halda sér við, þess vegna er ég orðin svo gömul,“ segir Ólafía. Ólafía á heimili sínu umkringd bókum af ýmsu tagi. Hún passi að fá sér alltaf reglulega ferskt loft. „Þegar ég er orðin svona gömul, þá er þetta skemmtilegasta sem ég geri,“ segir Ólafía og bætir við að hugarfarið skipti miklu máli í daglegu amstri. Rýnt í sögu Suðureyrar.
Eldri borgarar Tíska og hönnun Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Barnaspítalabindi Billy stal senunni Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Kristrún valdi Victoriu Beckham Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Staðráðnar í að koma sterkari til baka Minningar um mömmu það allra verðmætasta Sól sló í gegn á tískuviku í London Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Sjá meira