Sjáðu stórkostleg mörk Barca og Inter Sindri Sverrisson skrifar 1. maí 2025 08:02 Lamine Yamal fagnar stórkostlegu marki sínu gegn Inter í kvöld. Getty/Jose Breton Það voru skoruð stórglæsileg mörk þegar Barcelona og Inter gerðu 3-3 jafntefli í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Mörkin má nú sjá á Vísi.
Segja má að mörkin hafi verið hvert öðru glæsilegra en þau má sjá öll í spilaranum hér að neðan. Klippa: Mörk Barcelona og Inter Inter komst yfir eftir aðeins þrjátíu sekúndna leik, þegar Marcus Thuram skoraði afskaplega fallegt mark með hælspyrnu, eftir sendingu frá Denzel Dumfries. Hollendingurinn átti svo sjálfur eftir að skora seinni tvö mörk Inter. Dumfries kom Inter í 2-0 með frábærri hjólhestaspyrnu á 21. mínútu og sjálfsagt margir stuðningsmanna Barcelona þá orðið órólegir. Þá var hins vegar komið að hinum 17 ára gamla Lamine Yamal. Hann minnkaði muninn gjörsamlega upp á sitt einsdæmi, með einleik og mögnuðu skoti í stöng og inn, allt í anda Lionels Messi. Ferran Torres jafnaði svo metin af stuttu færi fyrir hálfleik, eftir skallasendingu Raphinha. Dumfries bætti við þriðja marki Inter á 63. mínútu en strax í kjölfarið náði Barcleona að jafna, með rosalegu skoti Raphinha utan teigs eftir hornspyrnu. Markið skráist reyndar sem sjálfsmark því boltinn fór í þverslána og þaðan í markvörðinn Yann Sommer og inn. Mörkin urðu ekki fleiri og því enn allt í járnum fyrir seinni leikinn á Ítalíu næsta þriðjudag sem ræður því hvort þessara liða fer í úrslitaleikinn.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Sjá meira