Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. febrúar 2025 22:46 Gestirnir jöfnuðu í blálokin. David Ramos/Getty Images Barcelona og Atlético Madríd gerðu 4-4 jafntefli í fyrri leik liðanna í undanúrslitum spænska bikarsins í knattspyrnu. Leikurinn var orðabókaskilgreining á kaflaskiptum leik.
Gestirnir frá Madríd voru 2-0 yfir eftir að eins sex mínútna leik. Julián Álvarez með fyrra markið og Antoine Griezmann það síðara, eftir undirbúning Álvarez. Heimamenn hafa hins vegar verið á góðu skriði undanfarið og jöfnuðu metin á næsta stundarfjórðungi leiksins. Pedri minnkaði muninn á 19. mínútu og tveimur mínútum síðar jafnaði miðvörðurinn ungi Pau Cubarsí metin. Staðan var svo orðin 3-2 Barcelonaí vil áður en fyrri hálfleik lauk þökk sé marki Iñigo Martínez. Þegar rúmur stundarfjórðungur var til leiksloka bætti varamaðurinn Robert Lewandowski við fjórða marki heimamanna sem virtust ætla að vera í góðum málum fyrir síðari leik liðanna. Gestirnir eru hins vegar ekki þekktir fyrir að gefast upp og Marcos Llorente minnkaði muninn á 84. mínútu. Þegar þrjár mínútur voru svo komnar fram yfir venjulegan leiktíma jafnaði Alexander Sørloth metin í 4-4 og þar við sat. Reyndust það lokatölur í hreint út sagt mögnuðum leik. Síðari leikur liðanna fer fram þann 2. apríl næstkomandi en þar kemur í ljós hvort liðið kemst í úrslit gegn annað hvort Real Madríd eða Real Sociedad.
Fótbolti Spænski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira