Orri Steinn kom ekki við sögu í tapi Sociedad Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. janúar 2025 22:30 Orri Steinn Óskarsson kom ekki við sögu. Getty Images/Octavio Passos Real Sociedad steinlá fyrir Lazio í Evrópudeild karla í knattspyrnu. Landsliðsframherjinn Orri Steinn Óskarsson mátti þola það að sitja á bekknum allan leikinn sem Lazio vann 3-1.
Heimamenn í Lazio byrjuðu frábærlega og voru komnir yfir eftir aðeins fimm mínútna leik. Mario Gila með markið eftir sendingu Taty Castellanos. Það hafði svo verið dæmt mark af heimaliðinu þegar gestirnir fóru úr öskunni í eldinn á 30. mínútu. Þá fékk Aihen Muñoz sitt annað gula spjald og þar með rautt. Það nýttu heimamenn sér til hins ítrasta. Mattia Zaccagni kom þeim 2-0 yfir eftir undirbúning Gustav Isaksen áður en Castellanos bætti þriðja markinu við eftir sendingu Nuno Tavares. Staðan 3-0 í hálfleik og sigurinn svo gott sem kominn í hús. Ander Barrenetxea minnkaði muninn fyrir gestina undir lok leiks en nær komust þeir ekki, lokatölur 3-1. Elías Rafn Ólafsson er meiddur og var ekki með Midtjylland þegar liðið vann 2-0 útisigur á Ludogorets. Eggert Aron Guðmundsson kom ekki við sögu þegar Elfsborg vann frækinn 1-0 sigur á Nice. Sömu sögu er að segja af Kristian Nökkva Hlynssyni er Ajax tapaði 1-0 fyrir RFS. Þegar ein umferð er eftir af deildarkeppni Evrópudeildarinnar eru öll Íslendingaliðin með 10 stig. Ajax er í 16. sæti og í 18. til 20. sæti eru Sociedad, Midtjylland og Elfsborg. Deildarkeppninni lýkur eftir næstu umferð. Þá fara efstu átta liðin beint í 16-liða úrslit á meðan liðin í 9. til 24. sæti fara í umspil um sæti í 16-liða úrslitum.
Fótbolti Evrópudeild UEFA Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Sjá meira