„Þá mun hann aldrei þurfa að kaupa sér pintu af Guinness“ Valur Páll Eiríksson skrifar 10. júlí 2024 19:45 John Andrews fagnar ráðningu Heimis hjá landsliði heimalands hans. Vísir/Samsett Írinn John Andrews, þjálfari Víkings í Bestu deild kvenna, er ánægður með ráðningu Heimis Hallgrímssonar sem nýs landsliðsþjálfara þeirra írsku.
Ráðning Heimis í dag kom mörgum á óvart enda er hann nýhættur með lið Jamaíku og hafði lítið kvisast út um viðræður við írska knattspyrnusambandið. Þar með lýkur 231 dags langri þjálfaraleit sambandsins, en svo langt er síðan að Stephen Kenny var látinn taka poka sinn. „Sem betur fer líður okkur eins og við höfum fengið réttan mann í starfið, eftir þessa bið. Ég er himinlifandi yfir þessu. Ég er heppinn að vera innan um fólk hér hjá félaginu (Víkingi) sem þekkir Heimi og getur vart hrósað honum nógu mikið,“ „Það eru margir ungir og öflugir leikmenn að banka á dyrnar hjá landsliðinu sem þurfa ef til vill smá strúktúr og stöðugleika sem ég held að Heimir komi með að borðinu,“ segir Andrews í samtali við Vísi. Þyrfti að spyrja O'Shea sjálfan John O‘Shea, fyrrum varnarmaður Manchester United, hefur stýrt landsliði Írlands til bráðabirgða á meðan eftirmanns Kenny var leitað. Hann gerði vel á tíma sínum í þeirri stöðu og vakti það upp einhverja gagnrýni á samfélagsmiðlum í dag að O'Shea hafi ekki fengið tækifæri til að taka alfarið við liðinu. John O'Shea stýrði liði Írlands til bráðabirgða, og gerði vel.Gareth Copley/Getty Images Það er því vert að spyrja Andrews hvort illa sé farið með O'Shea. „Það þyrfti að spyrja John sjálfan að því. Hann hefur stýrt liðinu í fjórum eða fimm leikjum og gert vel en Heimir hefur farið á Evrópumót og HM, stýrt um allan heim. Ferilskrá hans er góð. En það sem ég heyri af John virðist henta honum vel að þjálfa landsliðsbolta og hans tími gæti komið síðar. En sem Íri á Íslandi er ég gríðarlega ánægður með þessa ráðningu,“ segir Andews. Heimir með góða ferilskrá, alveg eins og Keane, Bruce og Benítez Á meðan löng leit Íra hefur staðið yfir hafa fjölmörg nöfn verið orðuð við starfið. Þar á meðal eru Roy Keane, Steve Bruce og Rafael Benítez. Andrews kveðst ekki ósáttur við að Heimir hafi verið valinn fram yfir þessa menn. „Ég er mikill aðdáandi Roy Keane, mér fannst hann gera ákaflega vel hjá Sunderland og Ipswich á sínum tíma, og hann var frábær sem aðstoðarþjálfari Írlands. Hann, Steve Bruce og Rafa Benítez eru allir með frábæra ferilskrá en Heimir hefur það líka. Hann hefur sinnt þessu á hæsta stigi alþjóðaboltans sem þjálfari og gefið Íslendingum þeirra bestu minningar, fótboltalega séð,“ „Þetta tók vissulega sinn tíma, ferlið ílendgist. En hvað karakter og persónuleika hans varðar held ég að þetta sé fullkomið fitt og ég held hann verði muni njóta mikils árangurs,“ segir Andrews. Tannlæknagrínið rétt að byrja Viðbrögð á meðal írskra stuðningsmanna hafa eins misjöfn og þau eru mörg á samfélagsmiðlum. Aðspurður um viðbrögðin heima fyrir segir Andrews Heimi geta átt von á því að grín verði gert að honum, en þjóðin muni flykkjast að baki honum ef hann kemst vel af stað. „Íra svipar að mörgu leyti til Íslendinga. Það verður mikið grín gert að tannlæknastarfinu, ég veit það. Írar hafa mikinn húmor og það verður gert mikið grín. En það verður allt á léttum nótum og ef hann verður vinsæll ef og þegar hann byrjar að vinna leiki, hvað þá gegn Englandi, eins og hann hefur góða reynslu af,“ „Fyrsti leikurinn er á Aviva-vellinum gegn Englandi, ef hann vinnur það verður hann þjóðhetja. En það verður gert grín, en það er allt gert í góðu. Ef hann gerir það sem hann er ráðinn til að gera og fer að vinna leiki, byggir liðið upp, þá mun hann aldrei þurfa að kaupa sér pintu af Guinness, það er alveg á tæru,“ segir Andrews.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Íslendingar erlendis Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Fleiri fréttir Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira