Hlupu út úr turninum með mat á diskum og rúllur í hárinu Rafn Ágúst Ragnarsson og Bjarki Sigurðsson skrifa 26. júní 2024 13:48 Fleiri hundruð starfsmenn vinna í turninum á Höfðatorgi sem þurfti að rýma í dag vegna eldsvoða. Fréttastofa náði tali af nokkrum strandaglópanna. Vísir Eldur kviknaði á jarðhæð turnsins á Höfðatorgi fyrir hádegi í dag en búið er að slökkva hann. Rýma þurfti bygginguna sem var ekkert smáræði þar sem mörg hundruð manns starfa í turninum. Allmargir biðu átekta fyrir utan Höfðatorg án þess að vita hvað þeir ættu að gera við sig þar sem þeir neyddust margir til að skilja bíllykla, húslykla og aðrar
Bryndís Snæbjörnsdóttir er rýmingarfulltrúi síns vinnurýmis í turninum og fréttastofa náði tali af henni á vettvangi. Hún segir rýminguna hafa gengið vel fyrir sig og að fljótt hafi verið brugðist við um leið og alvara málsins varð starfsfólkinu ljós. „Ég sat inni í fundarherbergi og það er ákveðið verklag þegar brunabjalla fer í gang þegar hún er búin að vera ákveðið lengi þá fer maður af stað og þegar það er slökkt og kveikt aftur þá fer maður stað. Áður en það gerðist kom samstarfsmaðurinn minn hlaupandi og sagði það er alvöru eldur það er reykur af því að hann sást út um gluggann,“ segir Bryndís. „Þá bara rauk ég, þreif vestið og allir út! Við komumst ekki út um hefðbundna flóttaleið það var akkúrat þar sem reykurinn steig upp þannig við fórum hina flóttaleiðina og gekk bara vel.“ „Það var strax mjög augljóst að það var alvara á ferðum,“ segir Bryndís. Fólk án síma og vinnugagna Báru Sigurjónsdóttur, starfsmaður velferðarsviðs Reykjavíkurborgar var einnig gert að rýma bygginguna. Hún segist hafa verið á tali við samstarfsfélaga þegar eld og reyk var að auga. „Ég var bara í spjalli við samstarfsfélaga og allt í einu kemur annar og segir að það sé kviknað í húsinu við hliðina á. Við erum hérna á sjöttu hæðinni þannig við sjáum þetta ágætlega. Og við sjáum bara eld og reyk,“ segir hún. Aðspurð segir Bára að allir hafi verið yfirvegaðir við rýminguna. „Já, það tóku þessu allir bara mjög alvarlega. Fólk er hérna án bíllykla og vinnugagna og húslykla og síma. Það fóru bara allir út,“ segir hún. Hlupu út með rúllurnar í hárinu og mat á disknum Yossi Rozantsev, starfsmaður Smitten sem er með skrifstofur á annarri hæð turnsins segir það hafa komið sér á óvart hvað hlutirnir gengu smurt fyrir sig þegar ljóst var að eldur logaði beint fyrir neðan þau. Þeim hafi tekist að bjarga flestu handtæku og nauðsynlegu með sér en aðrir hafi ekki verið svo heppnir. „Við reyndum að taka með okkur tölvurnar og eitthvað. En sumir hlupu út af hárgreiðslustofunni með dótið í hárinu og diska út af Intro,“ segir hann en það var á veitingastaðnum Intro sem eldurinn brann. Aðspurður segist hann ekki vita hvað hann ætli að gera við sig það sem af er degi. „Seg þú mér, ég kom hingað til að reyna að fara aftur inn en ég veit ekki,“ segir hann. Bíllyklalausir strandaglópar Margrét Thelma og Einar Þorláksson, starfsfólk TM, voru einnig í byggingunni þegar þau urðu vör við eldsvoðann. Megn lykt hafi tekið á móti þeim á flóttaleiðinni út úr turninum. „Maður hélt nú að þetta væri bara enn ein æfingin og að maður væri að missa af hádegismatnum en svo reyndist annað vera þegar maður fann lyktina,“ segir Einar. „Við erum bara strandaglópar hérna. Við gleymdum bíllyklunum,“ segir Margrét.
Slökkvilið Reykjavík Eldsvoði á Höfðatorgi Tengdar fréttir Hafa slökkt eldinn á Höfðatorgi Slökkvilið hefur ráðið niðurlögum elds sem kviknaði á Höfðatorgi í Katrínartúni um klukkan 11:30. 26. júní 2024 11:35 Héldu fyrst að um æfingu væri að ræða Maður sem starfar í turninum við Höfðatorg, þar sem eldur logar nú á fyrstu hæð, segir slökkvilið hafa komið hratt á vettvang. Rýming virðist hafa gengið vel þrátt fyrir að fjöldi fólks væri í húsinu. 26. júní 2024 11:59 Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Sjá meira
Hafa slökkt eldinn á Höfðatorgi Slökkvilið hefur ráðið niðurlögum elds sem kviknaði á Höfðatorgi í Katrínartúni um klukkan 11:30. 26. júní 2024 11:35
Héldu fyrst að um æfingu væri að ræða Maður sem starfar í turninum við Höfðatorg, þar sem eldur logar nú á fyrstu hæð, segir slökkvilið hafa komið hratt á vettvang. Rýming virðist hafa gengið vel þrátt fyrir að fjöldi fólks væri í húsinu. 26. júní 2024 11:59