Fótbolti

Telja minnstar líkur á að Ís­land fari á EM

Sindri Sverrisson skrifar
Andri Lucas Guðjohnsen og félagar í íslenska landsliðinu þurfa að hafa mikið fyrir því að komast á EM.
Andri Lucas Guðjohnsen og félagar í íslenska landsliðinu þurfa að hafa mikið fyrir því að komast á EM. vísir/Hulda Margrét

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta á erfitt verk fyrir höndum við að tryggja sér einn af síðustu farseðlunum á EM í Þýskalandi.

Ísland er í einni af þremur umspilskeppnum um sæti á EM og þarf að vinna Ísrael á fimmtudaginn, og í kjölfarið sigurliðið úr leik Bosníu og Úkraínu, 26. mars, til að komast inn á EM.

Samkvæmt We Global Football, síðu sem sérhæfir sig í að meta vinningslíkur út frá fyrri úrslitum, er Ísland ólíklegasta þjóðin af þessum fjórum til að komast inn á EM. Líkur Íslendinga eru aðeins 6,80% sem þýðir að fólk ætti líklega að bíða með að bóka flug til München í júní.

Úkraína er talin langlíklegust til að komast inn á EM, með 64,02% líkur. Ísrael kemur næst með 18,36% og Bosnía er með 10,81% líkur.

Í hinum umspilskeppnunum virðist keppnin fyrir fram jafnari. Í A-keppninni eru Wales (48,15%) og Pólland (36,06%) líklegust en Grikkland (45,18%) og Georgía (43,91%) eru líklegust í C-keppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×