Íslenski boltinn

Flestir spenntir fyrir Gylfa en ekki allir

Valur Páll Eiríksson skrifar
Valsfólk virðist almennt spennt fyrir komu Gylfa á Hlíðarenda.
Valsfólk virðist almennt spennt fyrir komu Gylfa á Hlíðarenda. Vísir/Samsett

Mikil spenna virðist vera á meðal Valsara vegna komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til liðsins. Púlsinn var tekinn meðal almennings í Valsheimilinu í gær.

Gylfi Þór skrifaði undir tveggja ára samning við Val í gær og mun leika með liðinu í Bestu deild karla í fótbolta næsta sumar. Um er að ræða ein stærstu skipti í sögu efstu deildar hérlendis og því við hæfi að fá viðbrögð Valsfólks við þessu.

„Þetta leggst rosalega vel í mig. Gylfi er bara minn maður og góður styrkleiki fyrir Val. Við tökum bara deildina með hann með okkur,“ segir Sigrún Ólafsdóttir.

„Dásamlegt. Ég er búinn að þekkja Gylfa í áratug, rúmlega. Toppmaður í alla staði. Hann mun lyfta öllu starfinu hér upp á annað plan. Það er frábært að fá svona sterkan karakter. Ég vona að hann plumi sig vel með liðinu og að Valur standi sig í sumar og spili samkvæmt væntingum,“ segir Þorgrímur Þráinsson.

„Þetta er rosalega gaman. Ég fór beint að kaupa mér árskort, sem ég hef nú ekki gert áður og treyju og allt,“ segir Ingibjörg María Þórarinsdóttir, sem verður fastagestur á vellinum í sumar. „Maður hefur svo sem verið það en þetta er ótrúlega skemmtilegt og maður hefur svo sem heyrt aðeins af þessu áður. En það verður hrikalega gaman í sumar,“

„Mér finnst það bara algjörlega frábært. Sértaklega gott að hann komi hérna til okkar Valsara. Ég veit það verður mjög gott fyrir okkur, og vonandi fyrir hann líka náttúrulega,“ segir Elías Gunnarsson.

Valsararnir ungu Jón Þórir, Davíð, Siggi og Dagur eru þá líka spenntir.

Ekki allir sammála

Það voru þó ekki allir eins spenntir í Valsheimilinu þar sem fleiri en einn aðili lýsti yfir áhyggjum við fréttamann og voru heldur varkárari í svörum.

Nefnt var að Gylfi væri með erfitt mál á bakinu sem lítið væri vitað um. Vegna alvarleika þess máls hefðu viðkomandi aðilar áhyggjur af því að hann yrði að fyrirmynd fyrir unga iðkendur í félaginu.

Þeir aðilar vildu þó ekki að nafn síns væri getið og vildu ekki tjá sig um málið á filmu. Þeir vildu þó koma þessum athugasemdum á framfæri.

Viðtölin úr Valsheimilinu má sjá í spilaranum að ofan.


Tengdar fréttir

„Það sem maður er spenntastur fyrir en á sama tíma óttast hvað mest“

Fé­lags­skipti Gylfa Þórs Sigurðs­sonar eru klár­lega stærstu fé­lags­skiptin í sögu ís­lenska boltans að mati Baldurs Sigurðs­sonar, sér­fræðings Stöðvar 2 Sport um Bestu deildina. Lyfti­stöng fyrir fé­lagið og ís­lenska boltann í heild sinni. Hvaða Gylfa Þór erum við að fara sjá inn á vellinum? Og hversu mikið fáum við að sjá til hans? 

Arnar segir Gylfa á allt öðrum stað: „Það þarf að beisla hann niður“

Eins og vel hefur verið fjallað um í dag er Gylfi Þór Sigurðsson orðinn leikmaður Vals. Eftir meiðslahrjáðar vikur er hann að komast á fullt aftur í boltanum. Arnar Grétarsson, þjálfari Vals segir Gylfa líta vel út. Það þurfi þó að beisla hann niður og um leið halda vel utan um hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×