Gáfu víti og misstu mann af velli í tapi gegn Lazio 14. febrúar 2024 22:00 Ciro Immobile skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu. EPA-EFE/CHRISTIAN BRUNA Lazio vann nokkuð óvæntan 1-0 sigur á Bayern München í fyrri viðureign liðanna 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Bayern München tókst ekki að svara fyrir sig eftir tapið í toppslag þýsku úrvalsdeildarinnar um síðustu helgi. Liðið spilaði langt undir getu og ógnaði marki gestanna ekkert í leiknum. Dayot Upamecano braut af sér í eigin vítateig á 67. mínútu og var rekinn af velli í kjölfarið. Joshua Kimmich andmælti ákvörðun dómarans og fékk að líta gult spjald fyrir. Ciro Immobile steig á punktinn og skoraði úr vítaspyrnunni. Það reyndist eina mark leiksins en heimamenn fengu fín færi til að bæta við. Eins og áður segir var þetta fyrri leikur liðanna í 16-liða úrslitum. Þau mætast aftur á Allianz leikvanginum í München þann 5. mars. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla
Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-3 | Valdimar Þór fór langleiðina með að tryggja titilinn Íslenski boltinn
Dagskráin í dag: Meistaradeildin, Bónus deild kvenna og verður Breiðablik Íslandsmeistari? Sport
Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-3 | Valdimar Þór fór langleiðina með að tryggja titilinn Íslenski boltinn
Dagskráin í dag: Meistaradeildin, Bónus deild kvenna og verður Breiðablik Íslandsmeistari? Sport