Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick?

Valur Páll Eiríksson skrifar
Martínez fauk af velli og eftir það var leik lokið.
Martínez fauk af velli og eftir það var leik lokið. Vísir/Guðmundur

Chelsea vann 2-0 sigur á Manchester United á Stamford Bridge í níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Rautt spjald Lisandro Martínez hjálpaði gestunum ekki í hálfleikjaskiptum leik.

Töluverð pressa var á Michael Carrick, knattspyrnustjóra Manchester United, fyrir leik dagsins. United hafði spilað átta leiki í röð án sigurs í öllum keppnum og aðeins unnið einn deildarleik á leiktíðinni sem var í lok ágúst.

Leikmenn United studdu við bak hans í fjölmiðlum í vikunni og gerðu það líka á vellinum framan af leik. Gestirnir voru töluvert sterkari aðilinn í fjörlegum fyrri hálfleik sem var fram og til baka.

Wesley Fofana var sérlega tæpur í öftustu línu Chelsea og United-menn fengu nokkur færi til að komast yfir, án árangurs. Amad Diallo fékk besta færi hálfleiksins þegar Penders í marki Chelsea varði sérlega vel úr dauðafæri undir lok hans.

Á meðan allt lék í lyndi í fyrri hálfleik. Mark Matheus Cunha var svo dæmt af og United hrundi eftir hléið.Vísir/Guðmundur

Matheus Cunha hélt fyrir það að hann hefði komið United yfir en vegna naumrar rangstöðu var mark hans dæmt af eftir endurskoðun myndbandsdómara.

Markalaust var í hléi en United-liðið sem mætti til leiks eftir hlé var fullkomnlega óþekkjanlegt.

Kúvending í hálfleik

Chelsea færði sér það í nyt og Morgan Rogers kom liðinu yfir eftir flottan sprett yfir allan vallarhelming United á 50. mínútu áður en hann setti boltann laglega í netið af stuttu færi. Sólómark sem hefði fengið meira hrós ef ekki væri fyrir vonlausan varnarleik United-manna sem voru eins og keilur að verjast Rogers.

Rúmum tíu mínútum síðar átti Chelsea hornspyrnu. Boltinn barst í átt að Wesley Fofana og Lisandro Martínez, varnarmaður Manchester United, sýndi skrautlega varnartakta er hann hljóp að Fofana og setti hendur í andlit hans.

Eftir skoðun á skjá var víti dæmt og Martínez bókaður að auki. Það vildi til að um var að ræða seinna gula spjald Martínez sem fauk því af velli og Chelsea manni fleiri það sem eftir lifði leiks.

Martínez greip fyrirsagnir fyrir tæpum tveimur vikum þegar hann gagnrýndi stjórnendur Manchester United harðlega fyrir skort á styrkingu á leikmannahópi liðsins. Martínez neyddist til að biðjast afsökunar en sá hefur ekki spilað vel það sem af er leiktíð.

Cole Palmer skoraði af punktinum og leiknum gott sem lokið á 64. mínútu.

Michael Carrick, knattspyrnustjóri Manchester United, gæti hafa verið að stýra liðinu í hinsta sinn.Vísir/Guðmundur

Chelsea skoraði eitt mark til þegar Brassinn Estevao, sem hefur verið í frystikistunni hjá Xabi Alonso hingað til á tímabilinu, skoraði laglegt mark. Hann var hins vegar rétt fyrir innan og markið dæmt af.

Áður en markið var tekið af höfðu hins vegar flestir stuðningsmenn United í stúku útiliðsins strunsað þaðan út, enda eðlilega ósáttir við gang mála.

Chelsea-menn höfðu ástæðu til að fagna.Vísir/Guðmundur

2-0 lauk leiknum fyrir Chelsea sem er með 16 stig í fjórða sæti eftir níu leiki en getur fallið neðar eftir aðra leiki helgarinnar.

Manchester United hefur enn aðeins unnið einn leik, með sjö stig í 16.sæti, en gæti verið í fallsæti eftir helgina.

„Rekinn í fyrramálið“ (e. sacked in the morning) sungu stuðningsmenn Chelsea í átt að Michael Carrick í síðari hálfleiknum og hver veit nema þjálfarinn verði fokinn á sama tíma á morgun.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira