Fótbolti

Allt jafnt er Svein­dís og Karó­lína mættust

Dagur Lárusson skrifar
Sveindís Jane í leiknum í dag.
Sveindís Jane í leiknum í dag. Vísir/Getty

Allt var jafnt er Wolfsburg og Bayer Leverskusen mættust í þýska boltanum í dag en þær Sveindís Jane og Karólína Lea byrjuðu báðar leikinn.

Sveindís Jane byrjaði á hægri kantinum hjá Wolfsburg á meðan Karólína var á miðri miðjunni hjá Leverskusen en það var Wolfsburg sem náði forystunni í leiknum en það gerðist á 37. mínútu þegar Alexandra Popp skoraði. Staðan var 0-1 í hálfleik.

Emilie Bragstad náði að jafna metin fyrir Leverkusen á 73. mínútu, staðan orðin 1-1 og það urðu lokatölur. Sveindís Jane spilaði 64. mínútur fyrir Wolfsburg á meðan Karólína spilaði allan leikinn fyrir Leverkusen.

Eftir leikinn er Wolfsburg enn í efsta sæti deidarinnar með 29 stig á meðan Leverkusen er í sjötta sætinu með 17 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×