Fótbolti

Magnaður árangur Muller hjá Bayern

Dagur Lárusson skrifar
Muller í leiknum í gær.
Muller í leiknum í gær. Vísir/Getty

Thomas Muller, leikmaður Bayern Munchen, náði merkum áfanga í gær eftir að liðið hafði betur gegn Borussia Mönchengladbach.

Svo vill til að þetta var fimmhundraðasti sigur Thomas Muller hjá félaginu sem var heiðraður í leikslok með treyju með tölunni 500 aftan á.

Þessi 34 ára gamli leikmaður hefur verið allan sinn atvinnumannaferil hjá félaginu en hann byrjaði að spila með aðalliði félagsins árið 2008 en síðan þá hefur hann skorað 145 mörk fyrir félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×