Fótbolti

Topp­bar­áttan gal­opin eftir jafn­tefli Le­verku­sen og Gladbach

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Úr leik kvöldsins.
Úr leik kvöldsins. EPA-EFE/CHRISTOPHER NEUNDORF

Bayer Leverkusen og Borussia Monchengladbach gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik dagsins þýsku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu.

Helstu keppinautar Leverkusen unnu góðan sigur fyrr í dag og því þurftu lærisveinar Xabi Alonso nauðsynlega á sigri að halda gegn Gladbach.

Allt kom fyrir ekki en Leverkusen var miklu mun betra liðið á vellinum í kvöld. Liðið skapaði sérfæri eftir færi en boltinn vildi ekki inn og niðurstaðan markalaust jafntefli.

Eftir leiki dagsins er Leverkusen á toppnum með 49 stig á meðan Bayern München kemur þar á eftir með 47 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×