Þorvaldur býður sig fram til formanns KSÍ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. janúar 2024 10:19 Þorvaldur Örlygsson vill verða formaður KSÍ. aðsend Þorvaldur Örlygsson, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns KSÍ á ársþingi sambandsins í næsta mánuði. Þar með hafa tveir tilkynnt um framboð sitt til formanns KSÍ, Þorvaldur og fyrrverandi samherji hans í íslenska landsliðinu, Guðni Bergsson. Vanda Sigurgeirsdóttir lætur af starfi formanns á ársþinginu 24. febrúar. „Síðustu mánuði hef ég fengið fjölda áskorana um að gefa kost á mér í þetta mikilvæga starf og eftir að hafa rætt við félags- og forráðamenn íslenskra knattspyrnufélaga og heyrt skoðanir þeirra á fjölmörgum þáttum íþróttarinnar, hef ég ákveðið að taka áskoruninni. Ég deili skoðunum, viðhorfum, áhersluatriðum, áhyggjum og framtíðarsýn fjölmargra félaga minna í íslenska boltanum og er þeirrar skoðunar að við þurfum betri bolta, bæði innan og utan vallar. Knattspyrnan hefur verið í fyrsta sæti hjá mér frá því að ég mætti með eldri bróður mínum á fyrstu æfinguna fimm ára gamall og hún er það enn. Ég veit að þekking mín, reynsla og áhugi mun reynast KSÍ vel í þeim verkefnum sem framundan eru,“ segir í tilkynningu frá Þorvaldi. Hann er 57 ára Akureyringur. Hann varð Íslandsmeistari með KA 1989 og var þá valinn besti leikmaður Íslandsmótsins. Þorvaldur lék svo í tíu ár á Englandi, Nottingham Forest, Stoke City og Oldham Athletic. Hann sneri aftur heim 2000 og gerðist þá spilandi þjálfari KA. Þorvaldur lék 41 landsleik á árunum 1987-95 og skoraði sjö mörk. Þorvaldur hefur einnig þjálfað Fjarðabyggð, Fram, ÍA, HK, Keflavík, Stjörnuna og U-19 ára landslið Íslands. Undanfarin misseri hefur hann verið rekstrar- og íþróttastjóri knattspyrnudeildar Stjörnunnar. Framboðstilkynning Þorvaldar Þorvaldur Örlygsson, rekstrarstjóri og íþróttastjóri knattspyrnudeildar Stjörnunar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns KSÍ á ársþingi sambandsins í næsta mánuði. Þorvaldur, sem var atvinnumaður í Þýskalandi og á Englandi um árabil, spilaði með KA, Fram og íslenska landsliðinu, þjálfaði í efstu deildum, auk þess að þjálfa yngri landslið Íslands, þekkir íslenska knattspyrnu afar vel frá öllum hliðum og segir mörg verkefni bíða KSÍ. „Síðustu mánuði hef ég fengið fjölda áskorana um að gefa kost á mér í þetta mikilvæga starf og eftir að hafa rætt við félags- og forráðamenn íslenskra knattspyrnufélaga og heyrt skoðanir þeirra á fjölmörgum þáttum íþróttarinnar, hef ég ákveðið að taka áskoruninni. Ég deili skoðunum, viðhorfum, áhersluatriðum, áhyggjum og framtíðarsýn fjölmargra félaga minna í íslenska boltanum og er þeirrar skoðunar að við þurfum betri bolta, bæði innan og utan vallar. Knattspyrnan hefur verið í fyrsta sæti hjá mér frá því að ég mætti með eldri bróður mínum á fyrstu æfinguna fimm ára gamall og hún er það enn. Ég veit að þekking mín, reynsla og áhugi mun reynast KSÍ vel í þeim verkefnum sem framundan eru.“ Meðal áhersluatriða nefnir Þorvaldur endurskoðun á stefnu og hlutverki KSÍ, ábyrgan rekstur, eflingu knattspyrnu á landsbyggðinni, styrkingu kvennaboltans, endurskoðun dómaramála og byggingu þjóðarleikvangs. „Við þurfum að fara í endurskoðun á stefnu og hlutverki KSÍ og rekstur þess þarf að vera ábyrgur. Ég vil auka og bæta samskipti lykilaðila í íslenskri knattspyrnu, eins og til að mynda KSÍ og ÍTF. Þá hef ég, eins og fleiri, áhyggjur af aukinni einangrun félaga á landsbyggðinni. Liðum fækkar, ferðakostnaður hækkar og við þurfum að grípa þar inn í. Dómaramál eru mér að sama skapi hugleikin. Ég vil fjölga dómurum og myndi vilja sjá þann þátt koma inn í skólakerfið og auka áhuga yngri kynslóða á dómarastarfinu, efla þannig stéttina og þar með bæta dómgæsluna. Ég vil tafarlausar viðræður við ríki og borg um þjóðarleikvang og tel að við eigum að endurbyggja Laugardalsvöll upp sem slíkan.“ Meðal helstu áhersluatriða Þorvaldar má nefna: Endurskoða stefnu og hlutverk KSÍ Tryggja ábyrgan rekstur KSÍ Auka og bæta samskipti lykilaðila í íslenskri knattspyrnu, t.d. KSÍ og ÍTF Stofna framkvæmdastjórn KSÍ Efla kvennaknattspyrnu á öllum sviðum, frá grasrót til landsliða Tryggja jafnrétti og fjölga konum innan stjórnkerfis KSÍ Koma hreyfingu á byggingu þjóðarleikvangs sem áfram verði í Laugardal Styrkja félagslið á landsbyggðinni og lækka ferðakostnað Fjölga dómurum og koma þeim þætti inn í skólakerfið Þorvaldur segir fjölmörg önnur atriði þarfnast nánari skoðunar, breytinga og endurskoðunar við og mun hann gera grein fyrir þeim þegar nær dregur ársþingi KSÍ. KSÍ Íslenski boltinn Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira
Þar með hafa tveir tilkynnt um framboð sitt til formanns KSÍ, Þorvaldur og fyrrverandi samherji hans í íslenska landsliðinu, Guðni Bergsson. Vanda Sigurgeirsdóttir lætur af starfi formanns á ársþinginu 24. febrúar. „Síðustu mánuði hef ég fengið fjölda áskorana um að gefa kost á mér í þetta mikilvæga starf og eftir að hafa rætt við félags- og forráðamenn íslenskra knattspyrnufélaga og heyrt skoðanir þeirra á fjölmörgum þáttum íþróttarinnar, hef ég ákveðið að taka áskoruninni. Ég deili skoðunum, viðhorfum, áhersluatriðum, áhyggjum og framtíðarsýn fjölmargra félaga minna í íslenska boltanum og er þeirrar skoðunar að við þurfum betri bolta, bæði innan og utan vallar. Knattspyrnan hefur verið í fyrsta sæti hjá mér frá því að ég mætti með eldri bróður mínum á fyrstu æfinguna fimm ára gamall og hún er það enn. Ég veit að þekking mín, reynsla og áhugi mun reynast KSÍ vel í þeim verkefnum sem framundan eru,“ segir í tilkynningu frá Þorvaldi. Hann er 57 ára Akureyringur. Hann varð Íslandsmeistari með KA 1989 og var þá valinn besti leikmaður Íslandsmótsins. Þorvaldur lék svo í tíu ár á Englandi, Nottingham Forest, Stoke City og Oldham Athletic. Hann sneri aftur heim 2000 og gerðist þá spilandi þjálfari KA. Þorvaldur lék 41 landsleik á árunum 1987-95 og skoraði sjö mörk. Þorvaldur hefur einnig þjálfað Fjarðabyggð, Fram, ÍA, HK, Keflavík, Stjörnuna og U-19 ára landslið Íslands. Undanfarin misseri hefur hann verið rekstrar- og íþróttastjóri knattspyrnudeildar Stjörnunnar. Framboðstilkynning Þorvaldar Þorvaldur Örlygsson, rekstrarstjóri og íþróttastjóri knattspyrnudeildar Stjörnunar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns KSÍ á ársþingi sambandsins í næsta mánuði. Þorvaldur, sem var atvinnumaður í Þýskalandi og á Englandi um árabil, spilaði með KA, Fram og íslenska landsliðinu, þjálfaði í efstu deildum, auk þess að þjálfa yngri landslið Íslands, þekkir íslenska knattspyrnu afar vel frá öllum hliðum og segir mörg verkefni bíða KSÍ. „Síðustu mánuði hef ég fengið fjölda áskorana um að gefa kost á mér í þetta mikilvæga starf og eftir að hafa rætt við félags- og forráðamenn íslenskra knattspyrnufélaga og heyrt skoðanir þeirra á fjölmörgum þáttum íþróttarinnar, hef ég ákveðið að taka áskoruninni. Ég deili skoðunum, viðhorfum, áhersluatriðum, áhyggjum og framtíðarsýn fjölmargra félaga minna í íslenska boltanum og er þeirrar skoðunar að við þurfum betri bolta, bæði innan og utan vallar. Knattspyrnan hefur verið í fyrsta sæti hjá mér frá því að ég mætti með eldri bróður mínum á fyrstu æfinguna fimm ára gamall og hún er það enn. Ég veit að þekking mín, reynsla og áhugi mun reynast KSÍ vel í þeim verkefnum sem framundan eru.“ Meðal áhersluatriða nefnir Þorvaldur endurskoðun á stefnu og hlutverki KSÍ, ábyrgan rekstur, eflingu knattspyrnu á landsbyggðinni, styrkingu kvennaboltans, endurskoðun dómaramála og byggingu þjóðarleikvangs. „Við þurfum að fara í endurskoðun á stefnu og hlutverki KSÍ og rekstur þess þarf að vera ábyrgur. Ég vil auka og bæta samskipti lykilaðila í íslenskri knattspyrnu, eins og til að mynda KSÍ og ÍTF. Þá hef ég, eins og fleiri, áhyggjur af aukinni einangrun félaga á landsbyggðinni. Liðum fækkar, ferðakostnaður hækkar og við þurfum að grípa þar inn í. Dómaramál eru mér að sama skapi hugleikin. Ég vil fjölga dómurum og myndi vilja sjá þann þátt koma inn í skólakerfið og auka áhuga yngri kynslóða á dómarastarfinu, efla þannig stéttina og þar með bæta dómgæsluna. Ég vil tafarlausar viðræður við ríki og borg um þjóðarleikvang og tel að við eigum að endurbyggja Laugardalsvöll upp sem slíkan.“ Meðal helstu áhersluatriða Þorvaldar má nefna: Endurskoða stefnu og hlutverk KSÍ Tryggja ábyrgan rekstur KSÍ Auka og bæta samskipti lykilaðila í íslenskri knattspyrnu, t.d. KSÍ og ÍTF Stofna framkvæmdastjórn KSÍ Efla kvennaknattspyrnu á öllum sviðum, frá grasrót til landsliða Tryggja jafnrétti og fjölga konum innan stjórnkerfis KSÍ Koma hreyfingu á byggingu þjóðarleikvangs sem áfram verði í Laugardal Styrkja félagslið á landsbyggðinni og lækka ferðakostnað Fjölga dómurum og koma þeim þætti inn í skólakerfið Þorvaldur segir fjölmörg önnur atriði þarfnast nánari skoðunar, breytinga og endurskoðunar við og mun hann gera grein fyrir þeim þegar nær dregur ársþingi KSÍ.
Þorvaldur Örlygsson, rekstrarstjóri og íþróttastjóri knattspyrnudeildar Stjörnunar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns KSÍ á ársþingi sambandsins í næsta mánuði. Þorvaldur, sem var atvinnumaður í Þýskalandi og á Englandi um árabil, spilaði með KA, Fram og íslenska landsliðinu, þjálfaði í efstu deildum, auk þess að þjálfa yngri landslið Íslands, þekkir íslenska knattspyrnu afar vel frá öllum hliðum og segir mörg verkefni bíða KSÍ. „Síðustu mánuði hef ég fengið fjölda áskorana um að gefa kost á mér í þetta mikilvæga starf og eftir að hafa rætt við félags- og forráðamenn íslenskra knattspyrnufélaga og heyrt skoðanir þeirra á fjölmörgum þáttum íþróttarinnar, hef ég ákveðið að taka áskoruninni. Ég deili skoðunum, viðhorfum, áhersluatriðum, áhyggjum og framtíðarsýn fjölmargra félaga minna í íslenska boltanum og er þeirrar skoðunar að við þurfum betri bolta, bæði innan og utan vallar. Knattspyrnan hefur verið í fyrsta sæti hjá mér frá því að ég mætti með eldri bróður mínum á fyrstu æfinguna fimm ára gamall og hún er það enn. Ég veit að þekking mín, reynsla og áhugi mun reynast KSÍ vel í þeim verkefnum sem framundan eru.“ Meðal áhersluatriða nefnir Þorvaldur endurskoðun á stefnu og hlutverki KSÍ, ábyrgan rekstur, eflingu knattspyrnu á landsbyggðinni, styrkingu kvennaboltans, endurskoðun dómaramála og byggingu þjóðarleikvangs. „Við þurfum að fara í endurskoðun á stefnu og hlutverki KSÍ og rekstur þess þarf að vera ábyrgur. Ég vil auka og bæta samskipti lykilaðila í íslenskri knattspyrnu, eins og til að mynda KSÍ og ÍTF. Þá hef ég, eins og fleiri, áhyggjur af aukinni einangrun félaga á landsbyggðinni. Liðum fækkar, ferðakostnaður hækkar og við þurfum að grípa þar inn í. Dómaramál eru mér að sama skapi hugleikin. Ég vil fjölga dómurum og myndi vilja sjá þann þátt koma inn í skólakerfið og auka áhuga yngri kynslóða á dómarastarfinu, efla þannig stéttina og þar með bæta dómgæsluna. Ég vil tafarlausar viðræður við ríki og borg um þjóðarleikvang og tel að við eigum að endurbyggja Laugardalsvöll upp sem slíkan.“ Meðal helstu áhersluatriða Þorvaldar má nefna: Endurskoða stefnu og hlutverk KSÍ Tryggja ábyrgan rekstur KSÍ Auka og bæta samskipti lykilaðila í íslenskri knattspyrnu, t.d. KSÍ og ÍTF Stofna framkvæmdastjórn KSÍ Efla kvennaknattspyrnu á öllum sviðum, frá grasrót til landsliða Tryggja jafnrétti og fjölga konum innan stjórnkerfis KSÍ Koma hreyfingu á byggingu þjóðarleikvangs sem áfram verði í Laugardal Styrkja félagslið á landsbyggðinni og lækka ferðakostnað Fjölga dómurum og koma þeim þætti inn í skólakerfið Þorvaldur segir fjölmörg önnur atriði þarfnast nánari skoðunar, breytinga og endurskoðunar við og mun hann gera grein fyrir þeim þegar nær dregur ársþingi KSÍ.
KSÍ Íslenski boltinn Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira