Menning

Bækur Gyrðis aldrei verið vin­sælli

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Gyrðir hefur sennilega aldrei verið vinsælli, en hann virðist ekki vera í náðinni hjá Stjórn listamannalauna.
Gyrðir hefur sennilega aldrei verið vinsælli, en hann virðist ekki vera í náðinni hjá Stjórn listamannalauna. Miðstöð íslenskra bókmennta

Ljóðabók Gyrðis Elíassonar, Dulstirni/Meðan glerið sefur er uppseld í helstu bókabúðum. Gyrðir hlaut ekki styrk úr launasjóði rithöfunda og bókin var ekki tilnefnd til bókmenntaverðlauna, en bóksali segir rithöfundinn aldrei hafa verið vinsælli.

Anna Lea Friðriksdóttir bóksali hjá Sölku segir að fimmtíu manns séu nú á biðlista eftir ljóðabókinni.

Yrkisefni Gyrðis er sem fyrr líf mannsins í hverfulum heimi. Hér er kápa umræddrar bókar.

„Hún var endurprentuð í flýti en týnist svo einhvers staðar á meginlandi Evrópu. Nú stendur fólki til boða að kaupa eldri bækur Gyrðis en svo er ég í raun að selja fólki gjafabréf fyrir bókinni þegar hún skilar sér, svokölluð Gyrðisbréf“ segir Anna Lea í samtali við Vísi.

Hún segir uppgang í sölu ljóðabóka en vinsældir Gyrðis hafi sjaldan eða aldrei verið meiri.

„Hann hefur auðvitað stöðugt verið vinsæll, en aldrei metsöluhöfundur. Það er nýtt fyrir hans bækur en skrifast sennilega líka á umfjöllun um hann undanfarið.“

Fjallað var um það fyrr í mánuðinum að Gyrðir væri ekki á meðal þeirra 68 rithöfunda sem myndu hljóta styrk úr launasjóði rithöfunda á næsta ári. Gyrðir sagðist í kjölfarið ekki ætla að sækja um styrk en málið vakti talsverða úlfúð meðal bókaunnenda og listamanna. 

„Þá kom alveg holskefla af fólki og ég held að útgefandi Gyrðis hafi nú ekki búið við þessum viðbrögðum, miðað við hvað hún seldist fljótt upp. Ég man að minnsta kosti eftir svona í kringum ljóðabók í frekar langan tíma, og hef nú verið í þessu í ansi mörg ár.“

Bókin er sömuleiðis uppseld, eða að verða uppseld, í bókabúðum Pennans Eymundsson.

Anna Lea er sjálf mikill aðdáandi Gyrðis. 

„Ég hef lesið flest af því sem hann hefur gefið út. Ef maður lítur yfir sviðið og þá starfandi íslensku rithöfunda sem gætu fengið nóbelsverðlaun þá er Gyrðir sennilega fremstur á blaði hjá mörgum “

PISA mögulega haft áhrif á sölu

Bóksala hefur gengið vel þessi jólin að sögn Önnu Leu sem segir að afleit niðurstaða PISA-könnunar hafi mögulega haft áhrif á söluna. Þar vaknaði bókaþjóðin upp við vondan draum.

„Þegar þessar niðurstöður voru birtar virðast margir hafa ákveðið að gefa börnum og ungmennum sérstaklega bækur í jólagjöf. Við tökum því auðvitað alltaf fagnandi.“


Tengdar fréttir

Þessi fá lista­manna­laun 2022

Starfslaunum til listamanna fyrir árið 2022 hefur verði úthlutað og fengu umsækjendur bréf frá Stjórn listamannalauna nú í morgun hvort þeir fengu eða ekki. Kætast þá margir eða eru svekktir eftir atvikum. Nú rétt í þessu var gefin út tilkynning um hverjir fá og má sjá lista yfir þá hér neðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×