Fótbolti

Harry Kane sló 69 ára gamalt met

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Harry Kane fagnar öðru marka sinn á móti Stuttgart um helgina.
Harry Kane fagnar öðru marka sinn á móti Stuttgart um helgina. AP/Matthias Schrader

Harry Kane heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Bayern München í þýsku deildinni og bætir hvert metið á fætur öðru.

Kane skoraði tvívegis í 3-0 sigri Bayern á Stuttgart um helgina og er með því kominn með tuttugu deildarmörk á tímabilinu.

Með því að ná tuttugasta markinu í aðeins fjórtánda leiknum sínum þá bætti enski landsliðsfyrirliðinn 69 ára gamalt met.

Gamla metið yfir að komast í tuttugu mörk í fæstum leikjum í byrjun ferils síns í þýsku deildinni var frá tímabilinu 1954–1955 þegar Uwe Seeler náði því í sínum 21. leik.

Erling Braut Haaland var mjög nálægt því að jafna met Seeler þegar hann kom í deildina fyrir nokkrum árum en tuttugasta markið hans kom í leik númer 22.

Metið lifði hins vegar ekki af innkomu Kane sem hefur skorað í ellefu af fjórtán deildarleikjum Bayern á leiktíðinni þar af tvö mörk eða fleiri í sex leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×