Menning

Orri ó­stöðvandi sækir að kónginum

Jakob Bjarnar skrifar
Bjarni Fritzson. Árangur hans með bækurnar um Orra óstöðvandi er eftirtektarverður.
Bjarni Fritzson. Árangur hans með bækurnar um Orra óstöðvandi er eftirtektarverður. vísir/vilhelm

Nýr bóksölulisti lítur dagsins ljós. Menn eru að koma sér fyrir. Eins og oft áður er Arnaldur Indriðason efstur, bæði í sölu þeirrar viku sem listinn tekur til sem og á uppsöfnuðum lista frá áramótum. En rithöfundar eru að koma sér fyrir á listum og skapa sér vígstöðu.

„Það eru engin stórtíðindi í gangi, Arnaldur er á toppi glæpasagnanna með Yrsu á hælunum. Ragnar Jónasson, Stefáni Máni og Eva Björg fylgja þeim í humátt líkt og svo oft áður. Sömu nöfnin en aðeins önnur uppröðun frá því í fyrra þegar Ragnar og Katrín Jakobsdóttir tróndu á toppnum,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Fíbút.

Ragnar mætti huga að titlum bóka sinna

Arnaldur, Stefán Máni og Eva Björg hlutu tilnefningar til Blóðdropans á föstudaginn, ásamt Skúla Sigurðssyni og Steindóri Ívarssyni. Það hlýtur að hafa einhver áhrif.

„Frýs í æðum blóð eftir Yrsu er einn besti glæpasagnatitill ársins en auk þess hef ég það á tilfinningunni að Stefán Máni sé á miklu flugi þessa dagana. Hvítalogn Ragnars Jónassonar er hins vegar titill sem ég held að sé ef til vill of líkur fyrri bók hans, Hvítadauða (segir hún varfærnislega) og jafnvel líka Snjóblindu þannig að það þarf kannski svolítið að hnykkja á því að þetta sé bók sem fólk hafi ekki áður lesið,“ segir Bryndís sem fer þjálfuðum fagmannsaugum yfir listann.

Í flokki skáldverka er bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar að seljast best en Sigríður Hagalín, Auður Ava og Vilborg Davíðsdóttir eru enn að sækja í sig veðrið. 

„Auður Ava, Vilborg, Eiríkur Örn, Steinunn Sigurðar og Bjarni Bjarnason hlutu öll tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna á dögunum en salan í ár dreifist vel á alla þá fjölmörgu titla sem út hafa komið á árinu.“

Gyrðir stígur inn á lista

Svo borið sé niður að handahófi. Í síðustu viku voru tvær ljóðabækur á listanum, Maður lifandi eftir Kristinn Óla S. Haraldsson (Króla) var í tólfta sæti listans og Örverpi Birnu Stefánsdóttur, sem vann Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í ár, var í því fjórtánda.

„Þessar bækur víkja af listanum í dag en í þeirra stað stígur Gyrðir Elíasson inn með ljóðabækurnar Dulstirni og Meðan glerið sefur sem sitja nú í átjánda sæti listans og tóku ágætan kipp í kjölfar umfjöllunar um Íslensku bókmenntaverðlaunin og úthlutanir úr Launasjóði listamanna.“


Bóksölulistinn 27. nóvember - 3. desember 2023

  1. Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
  2. Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
  3. Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Útkall Mayday, erum að sökkva - Óttar Sveinsson
  5. Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
  6. Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  7. Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  8. Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  9. Hvítalogn - Ragnar Jónasson
  10. Borg hinna dauðu - Stefán Máni
  11. Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  12. Gleðilega jólahátið - þrautabók
  13. Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson
  14. Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
  15. Blæja - Góða nótt leðurblaka - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  16. Deus - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
  17. Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
  18. DJ Bambi - Auður Ava Ólafsdóttir
  19. Álfar - Hjörleifur Hjartarson, myndh. Rán Flygenring
  20. Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir

Skáldverk og ljóð

  1. Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
  2. 2. Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
  4. Hvítalogn - Ragnar Jónasson
  5. Borg hinna dauðu - Stefán Máni
  6. Deus - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
  7. DJ Bambi - Auður Ava Ólafsdóttir
  8. Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir
  9. Jólabókaklúbburinn - Sarah Morgan, þýð. Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
  10. Miðnætti í Litlu jólabókabúðinni - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
  11. Land næturinnar - Vilborg Davíðsdóttir
  12. Valskan - Nanna Rögnvaldardóttir
  13. Náttúrulögmálin - Eiríkur Örn Norðdahl
  14. Blekkingin - Camilla Läckberg og Henrik Fexeus, þýð. Sigurður Þór Salvarsson
  15. Duft - Söfnuður fallega fólksins - Bergþóra Snæbjörnsdóttir
  16. Dauðadjúp sprunga - Lilja Sigurðardóttir
  17. Ból - Steinunn Sigurðardóttir
  18. Dulstirni / Meðan glerið sefur - Gyrðir Elíasson
  19. Högni - Auður Jónsdóttir
  20. Miðnæturrósin - Lucinda Riley, þýð. Herdís H. Húbner

Fræðirit, frásagnir, handbækur og ævisögur

  1. Útkall Mayday, erum að sökkva - Óttar Sveinsson
  2. Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  3. Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson
  4. Aðeins fleiri Pabbabrandarar - Þorkell Guðmundsson
  5. Afi minn stríðsfanginn - Elín Hirst
  6. Ullaræði: Villahullu - Heli Nikula, þýð. Guðrún Hannele Henttinen
  7. Eimreiðarelítan: Spillingarsaga - Þorvaldur Logason, ljósm. Kristján Logason - Steinason
  8. Hekla - Elsa Harðardóttir
  9. Forystufé og fólkið í landinu - Guðjón Ragnar Jónasson og Daníel Hansen
  10. Kynlegt stríð - Ástandið í nýju ljósi - Bára Baldursdóttir
  11. Krossgátur Morgunblaðið bók 14 - Ýmsir höfundar
  12. Heiðarprjón - Lene Holme Samsøe, myndh. K. Rohrberg, þýð. Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir
  13. Morðin í Dillonshúsi - Sigríður Dúa Goldsworthy
  14. Í eldhúsinu með Hrefnu Sætran - Hrefna Sætran
  15. Björn Pálsson : Flugmaður og þjóðsagnapersóna - Jóhannes Tómasson
  16. Prjónadraumar - Sjöfn Kristjánsdóttir
  17. Sólgeislar og skuggabrekkur - Svala Arnardóttir skrásetti
  18. Helvítis matreiðslubókin - Ívar Örn Hansen og Þórey Hafliðadóttir
  19. Sjálfsræktardagbókin 2024 - Inga Guðlaug Helgadóttir, Helga Fríður Garðarsdóttir og Margrét Kristín Pétursdóttir
  20. Sund - Valdimar Tr. Hafstein og Katrín Snorradóttir

Barna- og ungmennabækur

  1. Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
  2. Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  3. Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  4. Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  5. Gleðilega Jólahátið - þrautabók
  6. Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
  7. Blæja - Góða nótt leðurblaka - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  8. Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
  9. Álfar - Hjörleifur Hjartarson, myndh. Rán Flygenring
  10. Jólasyrpa 2023 - Walt Disney
  11. Risaeðlugengið 5 - Sæskrímslið - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer
  12. Bannað að drepa - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
  13. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson
  14. Dagbók Kidda klaufa 17 - Rokkarinn reddar öllu - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson
  15. Vatnslitatöfrar - Setberg
  16. Snúum og leikum, teningaspil - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  17. Glitrandi litabók með gimsteinum - Setberg
  18. Bóbó bangsi í leikskólanum - Hartmut Bieber
  19. Eldur - Björk Jakobsdóttir, myndh. Freydís Kristjánsdóttir
  20. Dýrahljóð bók með hljóði - Setberg

Uppsafnaður listi frá áramótum

  1. Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
  2. Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  3. Líkaminn geymir allt: hugur, heili, líkami og batinn eftir á - Bessel van der Kolk, þýð. Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson
  4. Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  5. Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
  6. Blóðsykursbyltingin - Jessie Inchauspé, þýð. Nanna Rögnvaldardóttir
  7. Hugrekki til að hafa áhrif - Halla Tómasdóttir
  8. Lungu - Pedro Gunnlaugur Garcia
  9. Blóðmáni - Jo Nesbø, þýð. Halla Kjartansdóttir
  10. Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
  11. Bella gella krossari - Gunnar Helgason
  12. Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
  13. Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
  14. Litlir lærdómshestar - Stafir - Elisabeth Golding
  15. Sólarupprás við sjóinn - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
  16. Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  17. Hvítalogn - Ragnar Jónasson
  18. Minningaskrínið - Kathryn Hughes, þýð. Ingunn Snædal
  19. Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  20. Vegahandbókin : ferðahandbókin þín - Ýmsir höfundar

Tengdar fréttir

Arnaldur á toppnum og fátt fær því breytt

Þá lítur fyrsti jóla-bóksölulisti Félags íslenskra bókaútgefenda ljós. Listi vikunnar nær yfir tímabilið 1.-26. nóvember en fram að jólum verður listinn svo tekinn saman vikulega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×