Menning

Arnaldur á toppnum og fátt fær því breytt

Jakob Bjarnar skrifar
Kóngurinn brosmildur. Arnaldur Indriðason hefur efni á því að brosa, hann er á toppnum og fátt virðist fá því breytt. Í uppsöfnuðum lista frá áramótum er hann á hraðferð upp listann, í 7. sæti.
Kóngurinn brosmildur. Arnaldur Indriðason hefur efni á því að brosa, hann er á toppnum og fátt virðist fá því breytt. Í uppsöfnuðum lista frá áramótum er hann á hraðferð upp listann, í 7. sæti. vísir/vilhelm

Þá lítur fyrsti jóla-bóksölulisti Félags íslenskra bókaútgefenda ljós. Listi vikunnar nær yfir tímabilið 1.-26. nóvember en fram að jólum verður listinn svo tekinn saman vikulega.

Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi bókaútgefenda segir þennan fyrsta lista oft svolítið óreiðukenndan og að hann hafi ekki endilega svo mikið forspárgildi um endanlega velgengni þeirra sem þarna eru listaðir. „Þeir eru auðvitað þó nokkrir sem fengu bækur sínar í október, héldu sín útgáfuhóf þá og náðu þar góðri sölu sem ekki skilar sér á þennan lista,“ segir Bryndís.

Arnaldur ber fyrirliðabandið

Bryndís kýs að að grípa til fótboltalíkingar þegar hún lýsir því helsta sem fyrir augu ber fyrir blaðamanni: Arnaldur ber fyrirliðabandið og gengur fremstur í flokki inn á völlinn, Yrsa, Ragnar, Stefán Máni, Eva Björg, Skúli og Lilja munu öll sækja að Arnaldi og aldrei sætta sig við bekkinn.

„Ólafur Jóhann, Auður Ava, Sigríður Hagalín, Vilborg Davíðs, Eiríkur Örn og Auður Jóns eru öll á besta aldri, í fanta formi og munu berjast eins og ljón en ættu ekki að vanmeta hættuna af þolgæðingunum og reynsluboltunum Vigdísi Gríms, Steinunni Sigurðar, Hlín Agnars, Einari Kára og Einari Má,“ segir Bryndís.

Bryndís Loftsdóttir er framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda. Sú bók sem helst kemur á óvart þegar horft er til bóksölu þessa vikuna er Frasabókin.vísir/vilhelm

Og hún heldur líkingarmáli sínu til streitu: „Þá erum við ekki einu sinni byrjuð að nefna djarfra leikmenn í glansandi búningum, Bergþóra Snæbjörnsdóttir fer þar fremst í flokki ásamt Þórdísi Helgadóttur, Friðgeiri Einarssyni, Sverri Norland, Braga Páli og Sigtryggi Baldurssyni sem reyndar er þekktari fyrir árangur sinni í annarri íþrótt…“

Allir með bók

Bryndís segir gamansöm að það mætti í raun gera frétt ef þeir finnast einhverjir, höfundarnir sem ekki eru með bók fyrir þessi jól.

„Á föstudaginn verður svo tilkynnt hverjir hljóta tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans, íslensku glæpasagnaverðlaunanna. Þeir sem ekki þrykkja tuðrunni í netið þann daginn mega þó ekki láta það slá sig út af laginu, leikurinn er rétt að byrja og mikilvægt að halda fókus alveg fram á aðfangadag. „Allt verður til fjárins unnið“ eins og Gísli segir í sinni sögu.“

Spurð hvort ekkert óvænt megi finna á listunum segir Bryndís það ekki vera svo.

„Nei, fjandakornið, það get ég ekki sagt. Jú, reyndar, Frasabókin er skjótast þarna hratt upp listann. Ég hélt að það hefði verið vegna útgáfuteitis en sé, að betur athuguðu máli, að hún er að fara mjög mikið á mörgum útsölustöðum.“

Og þannig er nú það.


20 mest seldu bækurnar 1.-26. nóvember 2023

  1. Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
  2. Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  4. Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  5. Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
  6. Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  7. Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
  8. Hvítalogn - Ragnar Jónasson
  9. Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
  10. Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
  11. Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  12. Eldgos - Rán Flygenring
  13. Borg hinna dauðu - Stefán Máni
  14. Bannað að drepa - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
  15. Duft - Söfnuður fallega fólksins - Bergþóra Snæbjörnsdóttir
  16. Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir
  17. Miðnætti í Litlu jólabókabúðinni - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
  18. Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
  19. Kynlegt stríð - Ástandið í nýju ljósi - Bára Baldursdóttir
  20. Fótboltastjörnur - Messi er frábær! - Simon Mugford, þýð. Guðni Kolbeinsson

Skáldverk og ljóð

  1. Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
  2. Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
  4. Hvítalogn - Ragnar Jónasson
  5. Borg hinna dauðu - Stefán Máni
  6. Duft - Söfnuður fallega fólksins - Bergþóra Snæbjörnsdóttir
  7. Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir
  8. Miðnætti í Litlu jólabókabúðinni - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
  9. DJ Bambi - Auður Ava Ólafsdóttir
  10. Deus - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
  11. Land næturinnar - Vilborg Davíðsdóttir
  12. Maður lifandi - Kristinn Óli S. Haraldsson
  13. Kjöt - Bragi Páll Sigurðarson
  14. Örverpi - Birna Stefánsdóttir
  15. Valskan - Nanna Rögnvaldardóttir
  16. Dauðadjúp sprunga - Lilja Sigurðardóttir
  17. Náttúrulögmálin - Eiríkur Örn Norðdahl
  18. Því dæmist rétt vera - Einar Már Guðmundsson
  19. Högni - Auður Jónsdóttir
  20. Kletturinn - Sverrir Norland

Fræðirit, frásagnir, handbækur og ævisögur

  1. Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  2. Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
  3. Kynlegt stríð - Ástandið í nýju ljósi - Bára Baldursdóttir
  4. Hekla - Elsa Harðardóttir
  5. Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson
  6. Afi minn stríðsfanginn - Elín Hirst
  7. Morðin í Dillonshúsi - Sigríður Dúa Goldsworthy
  8. Gangandi bassi - Endurminningar djassmanns - Tómas R. Einarsson
  9. Pabbabrandarar II - Þorkell Guðmundsson
  10. Ullaræði: Villahullu - Heli Nikula, þýð. Guðrún Hannele Henttinen
  11. Forystufé og fólkið í landinu - Guðjón Ragnar Jónasson og Daníel Hansen
  12. Sund - Valdimar Tr. Hafstein og Katrín Snorradóttir
  13. Í stríði og friði fréttamennskunnar … - Sigmundur Ernir Rúnarsson
  14. Horfinn heimur – minningaglefsur - Þröstur Ólafsson
  15. Heiðarprjón - Lene Holme Samsøe, myndh. K. Rohrberg, þýð. Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir
  16. Hagfræði daglegs lífs í stuttu máli - Gylfi Zoega
  17. Líkaminn geymir allt: hugur, heili, líkami og batinn eftir á - Bessel van der Kolk, þýð. Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson
  18. Stríðsbjarmar - Úkraína og nágrenni á átakatímum - Valur Gunnarsson
  19. Sjálfsræktardagbókin 2024 - Inga Guðlaug Helgadóttir, Helga Fríður Garðarsdóttir og Margrét Kristín Pétursdóttir
  20. Prjónadraumar - Sjöfn Kristjánsdóttir

Barna- og ungmennabækur

  1. Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  2. Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  3. Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
  4. Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
  5. Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  6. Eldgos - Rán Flygenring
  7. Bannað að drepa - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
  8. Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
  9. Fótboltastjörnur - Messi er frábær! - Simon Mugford, þýð. Guðni Kolbeinsson
  10. Snúum og leikum, teningaspil - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  11. Jólasyrpa 2023 - Walt Disney
  12. Bóbó bangsi í leikskólanum - Hartmut Bieber
  13. Litlu börnin læra - sveitin - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  14. Risaeðlugengið 5 - Sæskrímslið - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer
  15. Lúlli - Ulf Löfgren, Þýð. Sigríður Rögnvaldsdóttir
  16. Vatnslitatöfrar - Setberg
  17. Gurra - komum á koppinn - Asley Baker
  18. Sokkalabbarnir - Þorvaldur Davíð Kristjánsson, myndh. Bergrún Íris Sævarsdóttir
  19. Dagbók Kidda klaufa 17 - Rokkarinn reddar öllu - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson
  20. Álfar - Hjörleifur Hjartarson, myndh. Rán Flygenring

Uppsafnaður listi frá áramótum

  1. Líkaminn geymir allt: hugur, heili, líkami og batinn eftir á - Bessel van der Kolk, þýð. Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson
  2. Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  3. Blóðsykursbyltingin - Jessie Inchauspé, þýð. Nanna Rögnvaldardóttir
  4. Hugrekki til að hafa áhrif - Halla Tómasdóttir
  5. Lungu - Pedro Gunnlaugur Garcia
  6. Blóðmáni - Jo Nesbø, þýð. Halla Kjartansdóttir
  7. Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
  8. Bella gella krossari - Gunnar Helgason
  9. Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  10. Sólarupprás við sjóinn - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
  11. Litlir lærdómshestar - Stafir - Elisabeth Golding
  12. Minningaskrínið - Kathryn Hughes, þýð. Ingunn Snædal
  13. Vegahandbókin : ferðahandbókin þín - Ýmsir höfundar
  14. Hundaheppni - Lee Child, þýð. Jón Hallur Stefánsson
  15. Litla kaffihúsið í Kaupmannahöfn - Julie Caplin, þýð. Kristín Valgerður Gísladóttir
  16. Krossgátur Morgunblaðið bók 13 -
  17. Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
  18. Verstu gæludýr í heimi - David Walliams
  19. Violeta - Isabel Allende, þýð. Sigrún Á. Eiríksdóttir
  20. Hvítalogn - Ragnar Jónasson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×