Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi bókaútgefenda segir þennan fyrsta lista oft svolítið óreiðukenndan og að hann hafi ekki endilega svo mikið forspárgildi um endanlega velgengni þeirra sem þarna eru listaðir. „Þeir eru auðvitað þó nokkrir sem fengu bækur sínar í október, héldu sín útgáfuhóf þá og náðu þar góðri sölu sem ekki skilar sér á þennan lista,“ segir Bryndís.
Arnaldur ber fyrirliðabandið
Bryndís kýs að að grípa til fótboltalíkingar þegar hún lýsir því helsta sem fyrir augu ber fyrir blaðamanni: Arnaldur ber fyrirliðabandið og gengur fremstur í flokki inn á völlinn, Yrsa, Ragnar, Stefán Máni, Eva Björg, Skúli og Lilja munu öll sækja að Arnaldi og aldrei sætta sig við bekkinn.
„Ólafur Jóhann, Auður Ava, Sigríður Hagalín, Vilborg Davíðs, Eiríkur Örn og Auður Jóns eru öll á besta aldri, í fanta formi og munu berjast eins og ljón en ættu ekki að vanmeta hættuna af þolgæðingunum og reynsluboltunum Vigdísi Gríms, Steinunni Sigurðar, Hlín Agnars, Einari Kára og Einari Má,“ segir Bryndís.

Og hún heldur líkingarmáli sínu til streitu: „Þá erum við ekki einu sinni byrjuð að nefna djarfra leikmenn í glansandi búningum, Bergþóra Snæbjörnsdóttir fer þar fremst í flokki ásamt Þórdísi Helgadóttur, Friðgeiri Einarssyni, Sverri Norland, Braga Páli og Sigtryggi Baldurssyni sem reyndar er þekktari fyrir árangur sinni í annarri íþrótt…“
Allir með bók
Bryndís segir gamansöm að það mætti í raun gera frétt ef þeir finnast einhverjir, höfundarnir sem ekki eru með bók fyrir þessi jól.
„Á föstudaginn verður svo tilkynnt hverjir hljóta tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans, íslensku glæpasagnaverðlaunanna. Þeir sem ekki þrykkja tuðrunni í netið þann daginn mega þó ekki láta það slá sig út af laginu, leikurinn er rétt að byrja og mikilvægt að halda fókus alveg fram á aðfangadag. „Allt verður til fjárins unnið“ eins og Gísli segir í sinni sögu.“
Spurð hvort ekkert óvænt megi finna á listunum segir Bryndís það ekki vera svo.
„Nei, fjandakornið, það get ég ekki sagt. Jú, reyndar, Frasabókin er skjótast þarna hratt upp listann. Ég hélt að það hefði verið vegna útgáfuteitis en sé, að betur athuguðu máli, að hún er að fara mjög mikið á mörgum útsölustöðum.“
Og þannig er nú það.
20 mest seldu bækurnar 1.-26. nóvember 2023
- Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
- Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
- Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
- Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
- Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
- Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
- Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
- Hvítalogn - Ragnar Jónasson
- Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
- Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
- Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
- Eldgos - Rán Flygenring
- Borg hinna dauðu - Stefán Máni
- Bannað að drepa - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
- Duft - Söfnuður fallega fólksins - Bergþóra Snæbjörnsdóttir
- Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir
- Miðnætti í Litlu jólabókabúðinni - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
- Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
- Kynlegt stríð - Ástandið í nýju ljósi - Bára Baldursdóttir
- Fótboltastjörnur - Messi er frábær! - Simon Mugford, þýð. Guðni Kolbeinsson
Skáldverk og ljóð

- DJ Bambi - Auður Ava Ólafsdóttir
- Deus - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
- Land næturinnar - Vilborg Davíðsdóttir
- Maður lifandi - Kristinn Óli S. Haraldsson
- Kjöt - Bragi Páll Sigurðarson
- Örverpi - Birna Stefánsdóttir
- Valskan - Nanna Rögnvaldardóttir
- Dauðadjúp sprunga - Lilja Sigurðardóttir
- Náttúrulögmálin - Eiríkur Örn Norðdahl
- Því dæmist rétt vera - Einar Már Guðmundsson
- Högni - Auður Jónsdóttir
- Kletturinn - Sverrir Norland
Fræðirit, frásagnir, handbækur og ævisögur
- Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
- Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
- Kynlegt stríð - Ástandið í nýju ljósi - Bára Baldursdóttir
- Hekla - Elsa Harðardóttir
- Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson
- Afi minn stríðsfanginn - Elín Hirst
- Morðin í Dillonshúsi - Sigríður Dúa Goldsworthy
- Gangandi bassi - Endurminningar djassmanns - Tómas R. Einarsson
- Pabbabrandarar II - Þorkell Guðmundsson
- Ullaræði: Villahullu - Heli Nikula, þýð. Guðrún Hannele Henttinen
- Forystufé og fólkið í landinu - Guðjón Ragnar Jónasson og Daníel Hansen
- Sund - Valdimar Tr. Hafstein og Katrín Snorradóttir
- Í stríði og friði fréttamennskunnar … - Sigmundur Ernir Rúnarsson
- Horfinn heimur – minningaglefsur - Þröstur Ólafsson
- Heiðarprjón - Lene Holme Samsøe, myndh. K. Rohrberg, þýð. Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir
- Hagfræði daglegs lífs í stuttu máli - Gylfi Zoega
- Líkaminn geymir allt: hugur, heili, líkami og batinn eftir á - Bessel van der Kolk, þýð. Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson
- Stríðsbjarmar - Úkraína og nágrenni á átakatímum - Valur Gunnarsson
- Sjálfsræktardagbókin 2024 - Inga Guðlaug Helgadóttir, Helga Fríður Garðarsdóttir og Margrét Kristín Pétursdóttir
- Prjónadraumar - Sjöfn Kristjánsdóttir
Barna- og ungmennabækur
- Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
- Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
- Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
- Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
- Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
- Eldgos - Rán Flygenring
- Bannað að drepa - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
- Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
- Fótboltastjörnur - Messi er frábær! - Simon Mugford, þýð. Guðni Kolbeinsson
- Snúum og leikum, teningaspil - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
- Jólasyrpa 2023 - Walt Disney
- Bóbó bangsi í leikskólanum - Hartmut Bieber
- Litlu börnin læra - sveitin - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
- Risaeðlugengið 5 - Sæskrímslið - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer
- Lúlli - Ulf Löfgren, Þýð. Sigríður Rögnvaldsdóttir
- Vatnslitatöfrar - Setberg
- Gurra - komum á koppinn - Asley Baker
- Sokkalabbarnir - Þorvaldur Davíð Kristjánsson, myndh. Bergrún Íris Sævarsdóttir
- Dagbók Kidda klaufa 17 - Rokkarinn reddar öllu - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson
- Álfar - Hjörleifur Hjartarson, myndh. Rán Flygenring
Uppsafnaður listi frá áramótum
- Líkaminn geymir allt: hugur, heili, líkami og batinn eftir á - Bessel van der Kolk, þýð. Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson
- Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
- Blóðsykursbyltingin - Jessie Inchauspé, þýð. Nanna Rögnvaldardóttir
- Hugrekki til að hafa áhrif - Halla Tómasdóttir
- Lungu - Pedro Gunnlaugur Garcia
- Blóðmáni - Jo Nesbø, þýð. Halla Kjartansdóttir
- Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
- Bella gella krossari - Gunnar Helgason
- Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
- Sólarupprás við sjóinn - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
- Litlir lærdómshestar - Stafir - Elisabeth Golding
- Minningaskrínið - Kathryn Hughes, þýð. Ingunn Snædal
- Vegahandbókin : ferðahandbókin þín - Ýmsir höfundar
- Hundaheppni - Lee Child, þýð. Jón Hallur Stefánsson
- Litla kaffihúsið í Kaupmannahöfn - Julie Caplin, þýð. Kristín Valgerður Gísladóttir
- Krossgátur Morgunblaðið bók 13 -
- Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
- Verstu gæludýr í heimi - David Walliams
- Violeta - Isabel Allende, þýð. Sigrún Á. Eiríksdóttir
- Hvítalogn - Ragnar Jónasson