Fótbolti

Martinez ber virðingu fyrir Ís­landi: Nefnir tvo leik­menn sem hafa hrifið hann

Aron Guðmundsson skrifar
Roberto Martinez, landsliðsþjálfari portúgalska karlalandsliðsins í fótbolta ber mikla virðingu fyrir íslenska landsliðinu og hugarfarinu sem einkennir leikmenn þess
Roberto Martinez, landsliðsþjálfari portúgalska karlalandsliðsins í fótbolta ber mikla virðingu fyrir íslenska landsliðinu og hugarfarinu sem einkennir leikmenn þess Vísir

Rober­to Martinez, lands­liðs­þjálfari portúgalska karla­lands­liðsins í fót­bolta, segir sitt lið bera virðingu fyrir ís­lenska lands­liðinu en liðin mætast í loka­um­ferð undan­keppni EM 2024 í Lisabon í kvöld. Á sínum degi geti ís­lenska lands­liðið veitt hvaða liði sem er leik.

Aron Guðmundsson skrifar frá Lissabon.

Að­spurður hverja hann teldi vera helstu styrk­leika ís­lenska lands­liðsins hafði Martinez þetta að segja:

„Skipu­lagið og ég elska hugar­farið sem Ís­land býr yfir sem lið. Við urðum öll ást­fangin og hrifumst með til­finningunum sem Ís­land færði knatt­spyrnu­heiminum á EM árið 2016 og ég tel leifar af því enn búa í liðinu," segir Martinez í samtali við Vísi. „Þetta er mjög á­hrifa­ríkt lið sem getur verið mjög skeinu­hætt í sínum að­gerðum. Liðið sýnir mikla á­kefð í varnar­leik sínum og getur skapað færi upp úr engu á skömmum tíma.“

Klippa: Roberto Martinez: Á sínum degi getur Ísland veitt hvaða liði sem er leik

Hefur hrifist af Orra og Andra Lucasi

„Við þurfum því að vera vel á verði á morgun. Þetta er lið sem við berum virðingu fyrir. Við vitum að þarna er að eiga sér stað upp­bygging með nýjum leik­mönnum. Leik­menn sem hafa nú þegar látið til sín taka, ég nefni sem dæmi Orra Stein Óskars­son og Andra Lucas Guð­john­sen. Þegar á öllu er á botninn hvolft vitum við að til þess að vinna þennan leik þurfum við að vera upp á okkar besta.“

Orri Óskarsson hefur komið vel inn í íslenska A-landsliðiðVísir/Hulda Margrét

Kemur sú stað­reynd, að Ís­land hafi raunar aldrei verið í al­menni­legri bar­áttu um að komast upp úr þessum riðli, þér á ó­vart?

„Þetta snýst á endanum alltaf um ein­stök úr­slit hér og þar. Ég tel að úr­slit liðsins til að mynda á móti Slóvakíu heima hafi verið mjög ó­heppi­leg. Þar var um að ræða leik sem Ís­land átti skilið að vinna. Ef eitt­hvað er þá eru það svona úr­slit, þessi stig sem þú missir af, sem verða þess valdandi að þú ert úr leik í bar­áttunni fremur en að verða þess valdandi að þú eigir séns. Á sínum degi getur þetta ís­lenska lið veitt hvaða liði sem er leik. Það hefur ekkert breyst.“

Að mörgu að huga fyrir EM

Portúgal hefur fyrir löngu tryggt sér fyrsta sæti riðilsins og um leið EM sæti. Liðið hefur unnið alla sína leiki til þessa, skorað 34 mörk og að­eins fengið á sig tvö og getur með sigri á Ís­landi í kvöld inn­siglað magnað tap­laust gengi sitt í undan­keppninni.

Hafandi nú þegar tryggt ykkur sæti á EM, ertu að nýta þetta tæki­færi til þess að nýta leik­manna­hópinn betur í leit að fleiri val­kostum eða muntu spila þínu besta liði?

„Það er svo­lítið beggja blands. Það eru nokkrir sterkir leik­menn fjar­verandi hjá okkur og að­eins þrír leikir á dag­skránni hjá okkur fram að Evrópu­móti næsta árs. Eins og þú getur í­myndað þér þá þurfum við að búa til sam­keppni um stöður í liðinu hjá okkur, þurfum að mynda okkur skoðun á því hvaða 23 leik­menn munu ferðast með okkur á Evrópu­mótið. Við höfum verið að spila á ein­hverjum 33-34 leik­mönnum undan­farið og því er þetta verk­efni alltaf undir­liggjandi hjá okkur.

Við þurfum að sjá til þess að vera með okkar besta lið í höndunum og taka þar til­lit til margra þátta. Fram­undan er krefjandi tíma­bil þar sem að leik­menn eru að spila margar mínútur með sínum fé­lags­liðum í lands­deildunum þar sem og í öðrum Evrópu­keppnum. 

Þetta eru allt þættir sem við tökum inn í jöfnuna og vonumst til að út­koma okkar vinnu skili sér í vel skipu­lögðu og stöðugu liði sem getur um leið ýtt undir bestu ein­stak­lings hæfi­leika okkar leik­manna.“

Endurkoma Gylfa góðar fréttir

Rober­to Martinez á að baki margra ára feril í Eng­landi þar sem að hann þjálfaði meðal annars í ensku úr­vals­deildinni. Hann þekkir því vel til Gylfa Þórs Sigurðs­sonar sem spilaði lengi vel í deildinni og sneri í síðasta lands­liðs­verk­efni aftur í ís­lenska lands­liðið eftir um tveggja og hálfs árs fjar­veru.

Gylfi Þór er ekki með ís­lenska lands­liðinu í yfir­standandi verk­efni vegna meiðsla en Martinez segir endur­komu hans frá­bærar fréttir fyrir ís­lenska lands­liðið.

„Hæfi­leikar hans eru ó­tví­ræðir og án efa er Ís­land betra lið þegar að Gylfi Þór er innan raða þess. Það er frá­bært að sjá hann aftur inn á knatt­spyrnu­vellinum, til að mynda það sem hann gerði í leik Ís­lands gegn Liechten­stein á dögunum. Hvað þetta varðar er endur­koma hans góðar fréttir fyrir ís­lenska knatt­spyrnu.“

Leikur Portúgal og Íslands í undankeppni EM 2024 verður sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 Sport og hefst upphitun klukkan 19:10. Leikar hefjast svo korter í átta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×