Fótbolti

Karó­lína Lea lagði upp í jafn­tefli

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Karólína Lea heldur áfram að gera það gott með Leverkusen.
Karólína Lea heldur áfram að gera það gott með Leverkusen. Bayer Leverkusen

Bayer Leverkusen gerði 2-2 jafntefli við Eintracht Frankfurt í þýsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lagði upp fyrra mark Leverkusen.

Karólína Lea var í byrjunarliðinu og lagði upp fyrsta mark leiksins sem Synne Hansen skoraði á 17. mínútu. Var þetta þriðja stoðsending Karólínu Leu á leiktíðinni en hún hefur nú komið að sjö mörkum þar sem hún hefur skorað fjögur. Það tók heimaliðið hins vegar aðeins tvær mínútur að jafna metin og staðan því 1-1 í hálfleik.

Heimaliðið komst yfir þegar tuttugu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik og þó svo að Karólína Lea hafi verið tekin af velli á 77. mínútu tókst Leverkusen að jafna metin áður en flautað var til leiksloka, lokatölur 2-2.

Leverkusen er í 3. sæti með 12 stig, einu minna en Wolfsburg sem er í 2. sæti og tveimur minna en topplið Bayern München. Toppliðin tvö eiga þó leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×