Lífið

Eig­andi Mathúss Garða­bæjar selur slotið á Arnar­nesi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Húsið er um 376 fermetra að stærð á tveimur hæðum.
Húsið er um 376 fermetra að stærð á tveimur hæðum.

Jóhanna Bjargey Helgadóttir einn af eigendum Mathúss Garðabæjar hefur sett glæsilegt einbýlishús við Blikanes 16 í Garðabæ til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 275 milljónir.

Húsið var byggt árið 1966 en hefur verið mikið endurnýjað síðastliðin ár þar sem svartar innréttingar, björt rými og hlýir litatónar flæða milli rýma á smekklegan hátt. 

Húsið var byggt árið 1966 en hefur verið tölurvert endurnýjað síðastliðin ár.Kristján Orri Jóhannsson

Eignin er 376 fermetrar að stærð á tveimur hæðum. Eignin skiptist í eldhús, sex svefnherbergi, fjögur baðherbergi og þrjár stofur.

Í eldhúsi eru dökkar innréttingar og svört granít borðplata með mattri leður áferð. Innréttingin er U-laga með góðu skápaplássi og eyju fyrir miðju. Opið er á milli eldhúss og borðstofu sem leiðir inn í rúmgóðar og bjartar stofur með gólfsíðum gluggum. 

Nánari upplýsingar um eignina má finna á fasteignavef Vísis.

Eldhúsið er stórt og vel búið innréttingu með miklu skápa- og geymsluplássi, gott vinnupláss, stór og vegleg eyja með aðstöðu til að borða við en þar er einnig vínkælir og gott skúffupláss.Kristján Orri Jóhannsson
Kristján Orri Jóhannsson
Kristján Orri Jóhannsson
Stofurnar eru tvær, stór borðstofa næst eldhúsinu en þar eru nú komnir gólfsíðir gluggar og stór rennihurð út í garð á hellulagða verönd í norð-vestur. Kristján Orri Jóhannsson
Setustofa fyrir miðju er með fallegum arni með loftflæðistýringu.Kristján Orri Jóhannsson
Inn af stofunni er herbergi sem hugsað var sem skrifstofa (húsbóndaherbergi á teikningu) en hentar einnig sem svefnherbergi.Kristján Orri Jóhannsson
Glæsileg hjónasvíta þar sem falleg hönnun og hljóðdempandi útfærslur gera einstakt rými bæði smart, notendavænt og huggulegt.Kristján Orri Jóhannsson
Frístandandi baðkar, reyklitaðir speglar og svört innrétting setja punktinn yfir I-ið.Kristján Orri Jóhannsson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×