Lífið

Björg­vin og Mona skilin eftir tveggja ára hjóna­band

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Mona og Björgvin trúlofuðu sig árið 2019 og gengu í hjónaband árið 2021.
Mona og Björgvin trúlofuðu sig árið 2019 og gengu í hjónaband árið 2021. Andreas Fadum Se og Hør

Björg­vin Þor­steins­son og norska stórstjarnan og fegurðardrottningin Mona Grudt hafa ákveðið að skilja eftir tveggja ára hjónaband. Hjónin tilkynntu tímamótin í færslu á Facebook.

„Því miður höfum við komist að þeirri niðurstöðu að hjónabandið sé á enda og höfum því ákveðið að halda í sitthvora áttina. Við höfum engan áhuga á að ræða þetta frekar opinberlega. Við vonum að beiðni okkar verði virt á þessum erfiðum tímum,“ sagði í færslu parsins í lok ágúst. 

Skilnaðurin hefur verið mikið í umræðunni innan norskra fjölmiðla. Mona og Björgvin trúlofuðu sig árið 2019 og gengu í hjónaband árið 2021.

Hjónin hittust fyrir um átta árum síðan þegar Mona var kynnir á viðburði stjörnukokksins, Gordon Ramsey, á Scandic Lerkendal í Þrándheimi þar sem Björgvin starfaði sem hótelstjóri og skipuleggjandi viðburðarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×