Liverpool enn með fullt hús stiga eftir öruggan sigur

Ryan Gravenberch skoraði fjórða mark Liverpool í kvöld.
Ryan Gravenberch skoraði fjórða mark Liverpool í kvöld. Richard Sellers/Sportsphoto/Allstar via Getty Images

Liverpool er enn með fullt hús stiga í E-riðli Evrópudeildarinnar eftir öruggan 5-1 sigur gegn franska liðinu Toulouse í kvöld.

Heimamenn í Liverpool komust í forystu strax á níundu mínútu með marki frá Diogo Jota áður en Thijs Dallinga jafnaði metin fyrir gestina aðeins sjö mínútum síðar.

Wataru Endo endurheimti þó forystu heimamanna á 31. mínútu eftir fyrirgjöf frá Trent Alexander-Arnold og þremur mínútum síðar skoraði Darwin Nunez þriðja mark þeirra rauðklæddu. Reyndist það seinasta mark fyrri hálfleiks og staðan var því 3-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Nunez fékk svo algjört dauðafæri til að skora annað mark sitt og fjórða mark Liverpool er hann slapp einn í gegn á 65. mínútu. Hann gerði vel í að leika á markvörð gestanna, en tókst einhvernveginn að setja boltann í stöngina einn á móti marki. Ryan Gravenberch tók þó frákastið og innsiglaði sigur heimamanna.

Varamaðurinn Mohamed Salah bætti svo enn einu markinu við fyrir heimamenn í uppbótartíma og lokatölur urðu 5-1.

Niðurstaðan því öruggur 5-1 sigur Liverpool sem nú er með níu stig af níu mögulegum eftir þrjá leiki í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Toulouse situr í öðru sæti E-riðils, fimm stigum á eftir Liverpool, og rauði herinn er því svo gott sem búinn að tryggja sér áframhaldandi veru í keppninni að riðlakeppninni lokinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira