Lífið

Há­karlinn kom alltaf nær og nær

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Skarphéðni, Unni systur hans og Birni kærastanum hennar, var eðlilega nokkuð brugðið þegar hákarlinn tók beygjuna með bátnum.
Skarphéðni, Unni systur hans og Birni kærastanum hennar, var eðlilega nokkuð brugðið þegar hákarlinn tók beygjuna með bátnum.

„Við bjuggumst alveg við því að sjá hvali, enda mikið af þeim þarna fyrr um daginn og meira að segja höfrungar, en við bjuggumst ekki við því að sjá há­karl,“ segir Skarp­héðinn Snorra­son sem var á­samt systur sinni, kærasta hennar og hundi á bát í Stein­gríms­firði þegar þau tóku eftir ugga há­karls sem veitti bátnum eftir­för.

Skarp­héðinn birti mynd­band af eftir­förinni á sam­félags­miðlum fyrir þremur dögum síðar. Mynd­bandið hefur vakið gríðar­lega at­hygli og 40 þúsund manns barið það augum. Þar má sjá hve gríðar­lega stór há­karlinn er. Allar líkur eru á að um bein­há­karl sé að ræða, sem er sá stærsti við Ís­lands­strendur. 

Mynd­bandið var tekið í ágúst í fyrra en Skarphéðinn birti það á netinu fyrir þremur dögum. Horfa má á það neðst í fréttinni. Skarphéðinn var á ferð með Unni systur sinni, Birni Rúnarssyni kærasta hennar og hundinum Spora. Fjölskyldan á bústað á Drangsnesi og eru þau því alvön að fara út á fjörðinn.

Skarphéðinn á bátnum ásamt hundinum Spora.

Ákváðu að sleppa vestum þennan daginn

„Það var mjög mikið líf í firðinum þennan daginn. Við sáum mikið af höfrungum, hnúfubökum og hrefnum. Um kvöldið var mjög stillt veður og við ákváðum að skjótast aðeins út á bátnum og ætluðum að róa bara stutt með fjörunni inn fjörðinn og ákváðum að sleppa vestum í þetta skiptið,“ segir Skarphéðinn.

„En þegar við vorum komin svolítið áleiðis sáum við eitthvað drasl fljóta svolítið út frá fjörunni sem greip athygli okkar og við ákváðum að kíkja á það. Áður en við vissum af vorum við komin nokkur hundruð metra frá landi en þá einmitt birtist þessi stærðar skepna fyrir aftan bátinn. Ég heyrði bara vatnsnið fyrir aftan bátinn og lít þá yfir öxlina á Birni og sé þá þennan stærðar ugga standa upp úr vatninu og stefnir beint á okkur. Ég hugsaði strax með mér að við værum komin alltof langt frá landi og það án vesta.“

Hélt þetta væri háhyrningur

„Í fyrstu hélt ég að þetta væri háhyrningur en hann blés ekkert og hreyfingin var ekki upp og niður heldur til hliðanna. Þannig mig grunaði að þetta væri beinhákarl og vissi að þeir væru meinlausir en það var samt óþægileg tilhugsun um að hann færi utan í bátinn,“ segir Skarphéðinn.

„Ég tók beygjuna aftur í land og hann elti, svo prufaði ég að hætta að róa. Þá synti hann framhjá og hvarf. Við héldum áfram í land og örfáum mínútum seinna voru hnúfubakar komnir á sama svæði. Það er upp­lifun að sjá þá en þetta var tölu­vert öðru­vísi,“ segir Skarphéðinn sem bætir því við að þau hafi haldið um stund að um væri að ræða tvo há­karla svo stór var hann. Það hafi reynst verið sporður dýrsins. 


Tengdar fréttir

Hákarlar við Ísland lifa lengst allra hryggdýra

Hákarlar við Ísland virðast verða elstir allra hryggdýra á jörðinni, 200-300 ára gamlir. Og það sem meira er: Rannsókn á heila eins þeirra sýndi engin merki öldrunar þótt sá væri orðinn 245 ára gamall.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×