Fótbolti

Karó­lína Lea skoraði er Le­verku­sen missti niður tveggja marka for­ystu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Karólína Lea fer vel af stað með sínu nýja félagi.
Karólína Lea fer vel af stað með sínu nýja félagi. Twitter@femmesfootnews

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði fyrra mark Bayer Leverkusen þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Landsliðskonan er á láni hjá Leverkusen frá Þýskalandsmeisturum Bayern München. Hún hóf leikinn á miðjunni og skoraði fyrsta mark leiksins á 34. mínútu. Markið var einkar glæsilegt en Karólína Lea lét vaða með vinstri fyrir utan teig og söng boltinn í netinu.

Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks en Karólína Lea var tekin af velli í hálfleik. Kristin Kögel tvöfaldaði forystu Leverkusen á 62. mínútu og átta mínútum síðar fékk liðið kjörið tækifæri til að gera út um leikinn. 

Gestirnir fengu þá vítaspyrnu en spyrna Nikola Karczewska fór forgörðum og staðan enn 0-2. Það nýtti heimaliðið sér en Hoffenheim skoraði tvívegis á fjögurra mínútna kafla og leiknum lauk með 2-2 jafntefli.

Leverkusen er með fjögur stig að loknum þremur leikjum en Hoffenheim hafði unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni áður en kom að leik kvöldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×