Fótbolti

Xavi hló að blaðamanni: „Nei, ég er ekki hræddur“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Xavi óttast ekki um öryggi leikmanna sinna.
Xavi óttast ekki um öryggi leikmanna sinna. Getty

Xavi Hernández, þjálfari Barcelona, sat í gær fyrir svörum á blaðamannafundi í aðdraganda leiks Barcelona við Sevilla í kvöld. Hann hafði gaman að spurningu blaðamanns á fundinum.

Í liði Sevilla er miðvörðurinn Sergio Ramos sem háði marga baráttuna við Xavi á leikmannaferli hans er Ramos var leikmaður Real Madrid, erkifjenda Barcelona. Við hlið hans í vörnina var Portúgalinn Pepe í þónokkur ár en báðir eru þeir þekktir fyrir að vera fastir fyrir og hafa safnað ófáum spjöldum á ferli sínum.

Porto, félag Pepe, er næsti andstæðingur Barcelona eftir Sevilla-leikinn en liðin tvö eigast við Meistaradeildinni eftir helgi.

Xavi var spurður á fundinum hvort hann óttaðist um öryggi leikmanna sinna í næstu tveimur leikjum, mætandi harðjöxlunum tveimur.

Xavi hló að spurningu blaðamanns og var svar hans svo einfalt: „Nei, ég er ekki hræddur.“

Myndskeið af atvikinu má sjá að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×