Menning

Guð­bergur Bergs­son er látinn

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Guðbergur á æskuslóðum við Ísólfsskála á Reykjanesi árið 2021. Hann hafði engar áhyggjur af hraunrennslinu og sú tilfinning reyndist á rökum reist.
Guðbergur á æskuslóðum við Ísólfsskála á Reykjanesi árið 2021. Hann hafði engar áhyggjur af hraunrennslinu og sú tilfinning reyndist á rökum reist. Vísir/Egill

Guðbergur Bergsson, rithöfundur, er látinn, 91 árs að aldri. Guðbergur var einn þekktasti rithöfundur landsins og sendi frá sér fjölda bóka af ýmsum toga, smásögur, skáldsögur, barnabók, skáldævisögur og greinar um bókmenntir, listir og þjóðfélagsmál.

Verk Guðbergs hafa verið þýdd á fjölda tungumála, meðal annars búlgörsku, finnsku, frönsku og litháísku. Eitt af hans þekktustu verkum var skáldsaga hans, Tómas Jónsson, metsölubók sem hann gaf út árið 1966.

Guðni Þorbjörnsson

Fyrstu bækur hans voru skáldsagan Músin sem læðist og ljóðabókin Endurtekin orð. Báðar komu þær út árið 1961. Þá var Guðbergur einn afkastamesti þýðandinn á Íslandi úr spænsku. Hann hefur þannig átt stóran hlut í því að kynna Íslendinga fyrir spænsku- og portúgölskumælandi höfundum, meðal annars með þýðingum á verkum heimsbókmennta á borð við Don Kíkóta eftir Cervantes og Hundrað ára einsemd eftir Gabriel García Márquez.

Guðni Þorbjörnsson

Skáldsaga hans Svanurinn hefur vakið mikla athygli víða um heim og var samnefnd kvikmynd Ásu Hjörleifsdóttur, sem byggð er á bókinni, frumsýnd árið 2017.

Guðbergur hlaut margvíslegar viðurkenningar á ævi sinni fyrir ritstörf sín. Þannig hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin árin 1992 og 1998. Hann var auk þess tilnefndur til þeirra 1993 og 1997. Guðbergur hlaut svo Norræn verðlaun sænsku bókmenntaakademíunnar árið 2004.

Hafði engar áhyggjur af æskuheimilinu á gosstöðvum

Guðbergur fæddist á Ísólfsskála við Grindavík árið 1932. Hann heimsótti æskuslóðir sínar ásamt Kristjáni Má Unnarssyni fréttamanni á Stöð 2 árið 2021. Þá var útlit fyrir að æskuheimilið færi undir hraun vegna eldgoss í Geldingadölum.

Guðni Þorbjörnsson

Meðan frændfólk hans þusti til að bera verðmæti úr húsum og fornleifafræðingar flýttu sér að rannsaka minjar var Guðbergur sallarólegur gagnvart hrauninu, sagði það hafa vit á því að vera ekkert að eyðileggja Ísólfsskála. Guðbergur reyndist sannspár.

Eftirlifandi sambýlismaður Guðbergs er Guðni Þorbjörnsson, flugmaður og framkvæmdastjóri ARTPRO ehf. Þeir hafa í rúman áratug búið í Mosfellsbæ og Berlín, auk þess að eiga aðsetur í Reykjavík, Grindavík og Madrid. Saman eiga þeir Bengal kettina Pútín og Picasso.

Guðni Þorbjörnsson

Tengdar fréttir

Einn helsti höfundur landsins hunsaður

Guðbergur Bergsson rithöfundur var níræður um helgina. Svo umdeildur er Guðbergur að ekki einu sinni getur ríkt sæmilegur friður um þau tímamót hans. Á Facebook fór allt í hnút í gær þar sem brigslyrðin gengu á víxl.

Mergjaðar sögur Guðbergs frá æskuárum á Ísólfsskála

Guðbergur Bergsson rithöfundur hafði enga trú á því í sumar að hraunrennslið frá eldstöðinni í Geldingadölum myndi fara yfir Ísólfsskála. Fremur en að fjalla um eyðingu jarðarinnar kaus Guðbergur að segja okkur mergjaðar sögur frá æskuheimili sínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×