Sport

Gekk af göflunum á blaðamannafundi og bauð mönnum birginn

Aron Guðmundsson skrifar
John Fury stóð undir nafni og tók bræðiskast á blaðamannafundi í gær
John Fury stóð undir nafni og tók bræðiskast á blaðamannafundi í gær Vísir/Samsett mynd

John Fury, faðir hnefa­­leika­­kappanna Ty­­son og Tommy Fury, tók bræðis­kast á blaða­manna­fundi fyrir bar­­daga fyrr­­nefnda sonarins sem haldinn var í gær.

Það er á­vallt líf og fjör í kringum Fury-fjöl­­skylduna og blaða­manna­fundur gær­­dagsins var engin undan­­tekning hvað það varðar.

Tommy Fury mætir sam­­fé­lags­­miðla­­stjörnunni KSI í hnefa­­leika­hringnum í Manchester Arena þann 12. októ­ber næst­komandi og á sama kvöldi mun sam­­fé­lags­­miðla­­stjarnan Logan Paul mæta Dill­on Danis, MMA bar­daga­­kappa og æfinga­­fé­laga Conor McGregor.

Paul og Fury fjöl­skyldurnar hafa eldað grátt silfur saman undan­farin ár og bar Tommy, sem margir þekkja úr Love Is­land raun­veru­leika­seríunni, sigur­orðið af Jake Paul í hnefa­leika­hringnum fyrr á árinu.

Fúk­yrðin á milli kappanna fóru hátt á blaða­manna­fundinum í gær þar sem Logan Paul og KSI skutu fast á Fury-fjöl­­skylduna og á einum tíma­­punkti gat sá gamli ekki setið undir slíkum fúk­yrða­flaumi.

John Fury stóð upp, velti borðum og gjör­­sam­­lega gekk frá að­­stöðunni sem búið var að koma upp fyrir fundinn og bauð svo mönnum birginn.

Mynd­band af upp­­á­komunni má sjá hér fyrir neðan en það hefur flogið hátt á sam­­fé­lags­­miðlum.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×