Íslenski boltinn

Gamli þjálfarinn getur hjálpað Fylki að vinna Stjörnuna í fyrsta sinn í áratug

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðjón Baldvinsson reynir skot í leik með Stjörnunni á móti Fylki sumarið 2018.
Guðjón Baldvinsson reynir skot í leik með Stjörnunni á móti Fylki sumarið 2018. Vísir/Daníel Þór

7. ágúst 2013 var merkilegur dagur fyrir Árbæinga því þá vann Fylkir 2-1 sigur á Stjörnunni í þá Pepsi deild karla. Fylkismenn hafa ekki unnið Garðbæinga í úrvalsdeildinni síðan.

Rúnar Páll Sigmundsson er þjálfari Fylkis í dag en hann stýrði Stjörnunni í átta ár og er eini þjálfarinn sem hefur gert karlalið Stjörnunnar að Íslandsmeisturum.

Rúnar Páll getur í kvöld endað áratugsbið Fylkismanna eftir sigri í efstu deild á móti Stjörnunni.

Fylkir tekur á móti Stjörnunni í lokaumferð 19. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Liðin hafa mæst fimmtán sinnum í efstu deild frá þessum leik og Stjarnan hefur unnið tólf en þrír hafa endað með jafntefli. Markatalan er 33-9, Stjörnumönnum í vil. Stjarnan hefur tekið 93 prósent stiganna í leikjunum eða 39 af 42.

Liðin gerðu 2-2 jafntefli fyrr í sumar en þá stýrði Rúnar Páll Fylkisliðinu á sínum gamla heimavelli í Garðabænum. Hann var mjög nálægt því að enda biðina þá en Emil Atlason jafnaði metin fyrir Stjörnuna á þriðju mínútu í uppbótatíma.

Rúnar Páll Sigmundsson er þjálfari Fylkis.Vísir/Diego
  • Síðustu leikir Fylkis og Stjörnunnar í efstu deild karla:
  • 2023 í Garðabæ: 2-2 jafntefli
  • 2021 í Garðabæ: Stjarnan vann 2-0
  • 2021 í Árbæ: 1-1 jafntefli
  • 2020 í Árbæ: 1-1 jafntefli
  • 2019 í Árbæ: Stjarnan vann 4-1
  • 2019 í Garðabæ: Stjarnan vann 5-1
  • 2018 í Árbæ: Stjarnan vann 2-0
  • 2018 í Garðabæ: Stjarnan vann 3-0
  • 2016 í Árbæ: Stjarnan vann 2-1
  • 2016 í Garðabæ: Stjarnan vann 2-0
  • 2015 í Garðabæ: Stjarnan vann 1-0
  • 2015 í Árbæ: Stjarnan vann 2-0
  • 2014 í Árbæ: Stjarnan vann 3-1
  • 2014 í Garðabæ: Stjarnan vann 1-0
  • Samtals frá 2014 til 2023:
  • 12 Stjörnusigrar
  • 3 jafntefli
  • 0 Fylkissigrar
  • 33 Stjörnumörk
  • 9 Fylkismörk
  • 39 Stjörnustig
  • 3 Fylkisstig



Fleiri fréttir

Sjá meira


×