Fótbolti

Fyrirliðinn bjargaði Bandaríkjunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lindsey Horan fagnar jöfnunarmarki sínu fyrir Bandaríkin gegn Hollandi.
Lindsey Horan fagnar jöfnunarmarki sínu fyrir Bandaríkin gegn Hollandi. getty/Joe Prior

Bandaríkin og Holland gerðu 1-1 jafntefli í E-riðli í fyrsta leik dagsins á HM í fótbolta kvenna. Þessi sömu lið áttust við í úrslitaleik HM fyrir fjórum árum þar sem bandaríska liðið hafði betur, 2-0.

Jill Roord kom Hollandi yfir á 17. mínútu með skoti frá vítateigslínunni. Sitt hvoru megin við markið fengu Bandaríkin góð færi. Fyrst skaut Savannah DeMelo framhjá og svo varði Daphne van Domselaar frá Trinity Rodman.

Staðan var 1-0, Hollandi í vil, í hálfleik. Á 62. mínútu jafnaði Bandaríkin metin. Lindsey Horan, fyrirliði bandaríska liðsins, skallaði þá hornspyrnu Rose Lavalle í netið.

Þar við sat og liðin sættust á jafnan hlut. Þau eru bæði með fjögur stig í E-riðlinum en Portúgal og Víetman eigast við seinna í dag. Hvorugt þeirra er með stig.

Leikurinn í nótt var fyrsti leikurinn í síðustu fjórtán sem Bandaríkin vinnur ekki á HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×