Fótbolti

Ætlar að fá sér dónatattú ef England verður heimsmeistari

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jill Scott lætur Sydney Lohmann heyra það í úrslitaleik EM í fyrra.
Jill Scott lætur Sydney Lohmann heyra það í úrslitaleik EM í fyrra. getty/Jonathan Moscrop

Einn reyndasti leikmaður enska landsliðsins hefur lofað að fá sér dónalegt húðflúr ef England verður heimsmeistari í fótbolta.

Frægt var þegar Jill Scott lét Sydney Lohmann heyra það í úrslitaleik EM í fyrra þar sem England vann Þýskaland, 2-1.

Í hlaðvarpi sínu, Jill Scott's Coffee Club, sagðist hún ætla að fá sér tattú tengt atvikinu með Lohmann ef England stendur upp sem sigurvegari á HM.

„Ég veit ekki hvort ég ætti að gera þetta. Ég hef drukkið nokkra kaffibolla í dag. En þegar England vinnur HM læt ég flúra FOYFP á mig,“ sagði Scott.

FOYFP stendur fyrir Fuck off you fucking pussy sem var það sem Scott öskraði á Lohmann í úrslitaleik EM.

Vanalega blótar Scott ekki og hún hefur sagt að hún hafi skammast sín fyrir munnsöfnuðinn í úrslitaleiknum. Hún baðst síðan afsökunar á honum.

England sigraði Haítí, 1-0, í fyrsta leik sínum á HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×