Bíó og sjónvarp

Frumsýning á Vísi: Spennuþrungin stikla úr Kulda

Boði Logason skrifar
Myndin er byggð á samnefndri bók Yrsu Sigurðardóttur
Myndin er byggð á samnefndri bók Yrsu Sigurðardóttur

Íslenska bíómyndin Kuldi verður frumsýnd 1. september næstkomandi en myndin er byggð á samnefndri metsölubók Yrsu Sigurðardóttur.

Þegar Óðinn byrjar að rannsaka áratuga gömul dauðsföll á unglingaheimili, fer hann að gruna að óhugnalegir atburðir þaðan tengist dularfullu sjálfsvígi eiginkonu hans. 

Klippa: Stikla úr Kulda

Með aðalhlutverk fara Jóhannes Haukur Jóhannesson, Elín Hall, Selma Björnsdóttir, Mikael Kaaber, Sara Dögg Ásgeirsdóttir og Halldóra Geirharðsdóttir. Þá fer Ólöf Halla Jóhannesdóttir einnig með stórt hlutverk í myndinni, en hún er dóttir Jóhannesar Hauks og leikur sömuleiðis dóttur hans í myndinni. 

Eins og áður segir er myndin byggð á samnefndri bók Yrsu Sigurðardóttur, en síðasta kvikmynd sem byggð var á verkum Yrsu var hrollvekjan Ég man þig og var henni vel tekið í íslenskum kvikmyndahúsum.

Leikstjóri og handritshöfundur er Erlingur Óttar Thoroddsen. Þetta er ekki fyrsta mynd Erlings í fullri lengd en hann hefur meðal annars gert myndirnar Rökkur og Child Eater, sem fór sigurför um hrollvekjuheiminn og var meðal annars valin til að taka þátt í Horror Night á Stockholm International Film Festival.

Framleiðendur Kulda eru Sigurjón Sighvatsson og Heather Millard.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×