Lífið

Ekin-Su og Davi­de hætt saman

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ekin-Su og Davide létu sig hvorki vanta á frumsýningu Transformers í London 7. júní né frumsýningu Indiana Jones 27. júní. Kannski hefur of mikið magn aksjón-mynda leitt til sambandsslitanna.
Ekin-Su og Davide létu sig hvorki vanta á frumsýningu Transformers í London 7. júní né frumsýningu Indiana Jones 27. júní. Kannski hefur of mikið magn aksjón-mynda leitt til sambandsslitanna. John Phillips/Getty

Stjörnuparið Ekin-Su Cülcüloğlu og Davide Sanclimenti, sem unnu Love Island í fyrra, eru hætt saman eftir ellefu mánaða samband.

Hinn ítalski Davide greindi frá fréttunum í Instagram-hringrás sinni í dag, nokkrum dögum eftir að parið mætti saman á rauða dregilinn á frumsýningu nýjustu Indiana Jones myndarinnar.

Skjáskot úr hringrás Davide á Instagram.Skjáskot/Instagram

Þar skrifaði hann „Ekin-Su og ég erum ekki lengur saman.“

„Ég er þakklátur fyrir minningarnar og tækifærin sem við áttum saman og ég óska henni aðeins hins besta.“ 

„Ég myndi vilja að allir virði þessa ákvörðun á þessum erfiðu tímum. Ég mun halda áfram að styðja við Ekin með öllum mögulegum hætti.“

Ekin-Su hefur hins vegar ekkert birt á samfélagsmiðlum varðandi sambandsslitin enn sem komið er. Ef marka má hennar hringrás er hún áhyggjulaus í sólarlandafríi með móður sinni og systur.

Ekin-Su og Davide voru sigurvegarar í raunveruleikaþáttunum Love Island árið 2022 eftir stormasama seríu þar sem þau hættu tvisvar saman. Parið naut gríðarlegra vinsælda meðal Love Island-aðdáenda sem syrgja vafalaust tíðindin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×