Menning

Stoltastur af því að hafa brugðist rétt við upp­á­tæki sonarins

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Myndlistarmaðurinn Egill Eðvarðsson rifjar upp eftirminnilegt uppátæki Ella, sonar síns, í nýjasta þætti af Kúnst.
Myndlistarmaðurinn Egill Eðvarðsson rifjar upp eftirminnilegt uppátæki Ella, sonar síns, í nýjasta þætti af Kúnst. SAMSETT

„Myndin var nánast tilbúin og ég var að fara að setja hana á sýningu. Þegar ég kem út þá situr Elli á þessum háa stól, svona tveggja ára gamall, með rauðu krítina, ofboðslega ánægður, búinn að krassa yfir alla myndina,“ segir myndlistarmaðurinn Egill Eðvarðsson. Hann og sonur hans, Elli, eru viðmælendur í nýjasta þætti af Kúnst.

Hér má sjá þáttinn í heild sinni:

„Þetta er þessi frægi stóll sem ég sast upp á meðan að pabbi var að vinna í málverki,“ segir Elli og bendir á verk eftir þá feðga. 

Feðgarnir Elli Egilsson og Egill Eðvarðsson eru viðmælendur í nýjasta þætti af Kúnst.Vísir/Vilhelm

„Vinnustofan var svona lítið hús út í garði og pabbi þurfti að hlaupa inn í símann en þorði að skilja mig eftir einan því hann ætlaði bara að vera í nokkrar mínútur max

Svo kemur hann til baka og ég var búinn að skríða upp á stólinn og krota á verkið með eldrauðum lit. 

Sem var náttúrulega miklu betra en það sem hann var búinn að gera, það vantaði þetta power. Þetta var olíupastell og það var ekki séns að taka þetta af,“ segir Elli kíminn og Egill, faðir hans, bætir þá við:

„Eitt af því sem ég er stoltastur yfir á langri ævi er að hafa brugðist í þessu tilfelli rétt við. Þarna hefði verið kannski skiljanlegt að ég hefði æst mig við hann, rifið hann niður af stólnum og sagt honum að svona geri maður ekki. 

En þá segi ég að Elli væri ekki myndlistarmaður í dag. 

Af því þá hefðu skilaboðin frá mér sem foreldri verið svona gerir maður ekki Elli, hann var lítið barn þarna og hann myndi ekkert skilja það. En ég fór inn, bað hann að bíða, náði í myndavél og smellti mynd af honum. Sú mynd er til þar sem hann stendur stoltur við myndina. Þetta voru rétt viðbrögð.“

Egill segir mikla blessun að hafa brugðist rétt við þegar Elli málaði yfir myndina hans. Þetta sögulega augnablik náðist á filmu eins og sést hér.Egill Eðvarðsson

Þættirnir KÚNST með Dóru Júlíu rannsaka hinar ýmsu víddir listsköpunar, ólíka listmiðla og sköpunargleði hjá íslenskum samtíma listamönnum ásamt því að fá að skyggnast bak við tjöldin og heyra um persónulegt líf þeirra.


Tengdar fréttir

Seldi fyrstu nektar­myndina sína til The We­eknd

Elli Egilsson er heillaður að kvenlíkamanum sem viðfangsefni í myndlistinni en fyrsta slíka málverkið sem hann seldi fór til ofurstjörnunnar The Weeknd. Elli er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst ásamt föður sínum, Agli Eðvarðssyni, en þeir stóðu saman fyrir sýningunni SAMMÁLA í Gallery Port.

Með hjartað í buxunum þegar verkið týndist í pósti

Listrænu feðgarnir Elli Egilsson og Egill Eðvarðsson eru kannski ekki alltaf sammála þegar það kemur að listinni en þeir opnuðu þó saman sýninguna SAMMÁLA í Gallery Porti. Með sýningunni segja þeir að það hafi sannarlega komið í ljós að þeir geti unnið saman og það sem eftir standi sé fyrst og fremst virðing og væntumþykja í garð hvors annars. Elli og Egill eru viðmælendur í þessum þætti af Kúnst.

„Mig langaði bara að leyfa geir­vörtunni að njóta sín“

„Ég var búin að upplifa það svolítið mikið hvað þetta var mikið tabú,“ segir ljósmyndarinn og listakonan Berglind Rögnvaldsdóttir, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Berglind notast gjarnan við viðfangsefni á borð við kvenlíkamann og náttúruna og má segja að verk hennar séu femínísk og einkennist af kvennakrafti. Um þrítugt ákvað hún að skrá sig í ljósmyndanám í Osló og átti lífið í kjölfarið eftir að gjörbreytast í listræna og ævintýralega átt.

„Ég var stundum há­skælandi að mála þessi verk“

„Ég dett bara í einhverja hugleiðslu og mála án þess að hugsa of mikið. Ég leyfi því að gerast sem vill gerast,“ segir listamaðurinn Baldur Helgason. Lífið tók óvænta og kærkomna stefnu hjá honum eftir að hann fékk tækifæri hjá galleríi í Chicago en síðan þá hefur hann verið að gera öfluga hluti í hinum stóra heimi myndlistarinnar. Baldur Helgason er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Draumurinn rættist þegar Netflix hringdi

Ljósmyndarinn Benjamin Hardman hefur verið hugfanginn af Íslandi frá því hann kom hingað í fyrsta skipti árið 2013. Tveimur árum síðar flutti hann hingað og hefur síðan þá unnið hörðum höndum að því að láta draum sinn rætast um að vinna af fullum krafti við ljósmyndun og myndbandsgerð. Hann á að baki sér áhugaverða og einstaka sögu en Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

„Hann var á betra kaupi en þær við það að horfa á þær vinna“

Listakonan, vefarinn og brautryðjandinn Hildur Hákonardóttir hefur haft mikil áhrif á íslenska listheiminn með einstökum og pólitískum verkum sínum. Hún hefur með sanni átt viðburðaríkt líf og er þekkt fyrir að hafa alltaf verið nokkrum skrefum á undan. Verk hennar prýða nú Kjarvalsstaði á yfirlitssýningunni Rauður þráður sem Sigrún Hrólfsdóttir sýningarstýrir. Hildur Hákonardóttir er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Fékk ljós að láni hjá Salvador Dali

Myndlistarkonan Sigga Björg Sigurðardóttir er óhrædd við að nálgast óþægileg viðfangsefni í list sinni. Listasafn Reykjavíkur stendur fyrir sýningunni Andardráttur á glugga á Ásmundarsafni þar sem verk Siggu Bjargar eiga í samtali við verk Ásmundar Sveinssonar. Sigga Björg er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst, þar sem hún deilir sínum skapandi hugarheimi ásamt skemmtilegum sögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×