Menning

Sýningin Hæncóson heitir í höfuðið á föðurnum sem hvarf spor­laust

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Óðinn Freyr Valgeirsson og Mæja Sif Daníelsdóttir fyrir utan sýningarstaðinn Hlemm mathöll.
Óðinn Freyr Valgeirsson og Mæja Sif Daníelsdóttir fyrir utan sýningarstaðinn Hlemm mathöll. Aðsent

Óðinn Freyr Valgeirsson heldur sína fyrstu listasýningu á Hlemmi mathöll á laugardaginn. Sýningin heitir Hæncóson sem er vísun í verslunina Hæncó sem faðir Óðins, Valgeir Víðisson, rak en hann hvarf sporlaust árið 1994 í einu dularfyllsta mannshvarfi á Íslandi.

Óðinn hefur átt erfiða ævi svo ekki sé meira sagt. Faðir hans hvarf þegar Óðinn var aðeins sex ára í máli sem var talið tengjast fíkniefnaheiminum en var aldrei leyst. Árið 1995 lenti hann í alvarlegu slysi í Bandaríkjunum sem dró hann næstum því til bana og hefur hann verið með 75 prósent örorku síðan.

Óðinn er í dag heimilislaus og hefur glímt við mikinn fíknivanda í gegnum árin. Þá hefur hann ítrekað komist í kast við lögin fyrir þjófnað og alvarlegar líkamsárásir og hefur mörgum sinnum setið inni. 

Vísir hafði samband við Óðinn til að ræða við hann um sýninguna Hæncóson og myndlistina. Hann segir að eftir að hann fékk loksins viðeigandi læknisaðstoð sé „enginn hnullungur í veginum lengur“ og hann geti loksins blómstrað.

„Enginn hnullungur í veginum lengur“

„Þetta er fyrsta opinbera sýningin mín af teikningum,“ sagði Óðinn aðspurður hvort þetta sé ekki fyrsta sýningin hans.

Óðinn hefur lent í ýmsu um ævina.Aðsent

Hvað kemur til að þú ert að sýna þína fyrstu sýningu núna á fertugsaldri?

„Ég er íslenskur listamaður að blómstra en málið er að ég hefði aldrei náð að elta það sem mig hefur langað að gera af því það hefur svo lítið tekið mark á því sem ég hef til málanna að leggja,“ sagði Óðinn um ástæðuna fyrir því að hann hafi ekki byrjað að skapa fyrr. Þar hafi spilað inn í slys, fíkn og ytri aðstæður.

„Ég var áður fyrr álitinn vera með fíknivandamál en svo hefur alltaf verið að koma betur og betur í ljós, fyrir mér með aldrinum, að manneskjan er fíkinn í eðli sínu. Það eiga allir við eitthvað að etja,“ segir Óðinn.

Hann segir að eftir að hann fékk loksins viðeigandi hjálp frá læknum hafi hann getað einblínt á listina 

„Það er enginn hnullungur í veginum lengur,“ segir Óðinn sem segist loksins geta skapað og gert eitthvað í höndunum.

Þakklátur fyrir tækifærið og hjálpina

Óðinn stendur ekki alveg einn að baki sýningunni heldur hefur hann fengið hjálp frá Mæju Sif Daníelsdóttur, myndlistarkonu og kokki. Þau kynntust á Hlemmi fyrir nokkrum árum þar sem hún vinnur. Óðinn sagði þá við hana „Ég á draum að halda listasýningu. Ég er listamaður eins og pabbi.“

Mæja hefur hjálpað Óðni mikið við undirbúning sýningarinnar.Aðsent

Þau hafa haldið sambandi og fyrir átta mánuðum færði Mæja honum penna og striga og hvatti hann til að skapa. Óðinn hefur undanfarna mánuði unnið að verkunum í Fjölsmiðjunni þar sem hann er með aðstöðu og vegna plássleysis hefur hann síðan fengið að geyma verkin hjá henni.

„Það er rosalega mikið lán að fá þetta tækifæri að geta sýnt og opinberað og boðið upp verkin mín. Það er mikill heiður,“ segir Óðinn.

„Ég hef lent í alls konar líkamlegum og andlegum tjónum í gegnum ævina en ég vil meina það að þetta er allt gerlegt af því ég er með sterkt bakland af fólki í listaheiminum,“ segir hann um hjálpina sem hann hefur fengið.

„Ég er ekki að gera þetta með hangandi hendi, ég vanda mig vel við þetta. Ég fleygi þessu ekki út.“

Hvernig verk eru þetta þá sem þú gerir?

„Þetta eru aðallega teikningar en eitt til tvö málverk,“ segir Óðinn. 

Hann bætir við að hann líti á sig sem „fjöldaþjalalistamann“ og hann sé mikill rithöfundur í sér, hafi „ljóða- og samsetningarhæfileika“ og hefur skrifað handrit að lítilli barnabók.

Hæncóson til heiðurs föðurnum sem hvarf

En þá að nafni sýningarinnar, Hæncóson. Hvað kom til að þú valdir það?

„Hæncóson er til heiðurs föður mínum. Hæncó var mótorhjólaverslun sem var í eigu föður míns sem hvarf þegar ég var lítill. Hún seldi alls konar aukahluti í hjól, hliðarbúnað og galla og það eru til myndir af mér á einhverju svona mótorhjóli þegar ég var krakki,“ segir Óðinn.

Hann bætir við að teiknihæfileikana erfi hann „úr föðurætt“ og þá aðallega frá föður sínum. „Hann var rosa mikið að teikna svona fígúrur og áhrifin frá honum sjást í mínum stíl.“

Afi Óðins, Víðir Valgeirsson, ásamt Edvard Marx en þeir ráku verslunina Hæncó ásamt föður hans sem hvarf.Skjáskot

En þá að hvarfi föður þíns, það hefur væntanlega haft mikil áhrif á þig?

„Ég var að verða sjö ára þegar það gerðist og ég var alltaf að bíða eftir að hann kæmi aftur af því ég fékk engin svör. En ég var náttúrulega líka svo lítill.“

„Ég átta mig á því í dag að hann lifir í mér. Við erum öll eitt,“ segir Óðinn.

„Ég er rosalega ánægður að fá að taka þátt í lífinu yfir höfuð. Allt í einu greip það mig eftir að borgin fór með mig að tala við viðeigandi lækna. Þá lagði ég spilin á borðið og sagði Ég nenni ekki að lifa sem einhver glæpon, ég er ekki glæpon.“ 

„Af því ég veit að ég get það þá langar mig til að búa til eitthvað sem selst heldur en að vera sveittur að koma úr einhverri utanlandsferð að gera eitthvað af mér. Miklu frekar. Enda eru þeir sem geta það í sigurliðinu,“ segir hann.

Aldraðar stökkbreyttar skjaldbökur, fígúrur og artý stíll 

Verkin sem eru alls sextán talsins skiptast að sögn Óðins í þrjá ólíka hluta eftir efnistökum og stíl.

„Verkunum skipti ég í þrjá ólíka hluta. Einn hlutinn er með „Picassolegum artý stíl“. Svo er annar svona skriðdýrahluti, mín eigin útgáfa af Teenage Mutant Ninja Turtles en þegar þeir eru orðnir eldri. Svo er einn hlutinn sem eru skemmtilegar og fjölbreyttar fígúrur í teiknimyndastíl.“

Óðinn segir verkin öll vera mjög vönduð og margir mánuðir farið í gerð þeirra. 

„Ég geri ekki neitt verk nema að leggja vandvirkni og auga í það. Annars læt ég það ekki frá mér,“ segir Óðinn.

Hér má sjá brot úr tveimur verkum Óðins.Aðsent

Hvað tekur svo við eftir sýninguna?

„Ég held auðvitað áfram í listinni. Margir hópar eiga eftir að reka upp stór augu held ég. Bíddu, var þessi ekki bekknum?

„Það er bara svona, ef viljinn er fyrir hendi þá nærðu að gera það sama hvort þú náir því ekki í fyrstu tilraun eða annarri. Á endanum nærðu því,“ segir hann.

Sýningin Hæncoson opnar klukkan 16 á laugardaginn í Hlemmi mathöll. Óðinn mun flytja ræðu klukkan hálf fimm fyrir sýningargesti. Á laugardag og sunnudag mun fólki gefast tækifæri á að bjóða í verkin og munu þeir sem bjóða hæst fá verkin á mánudag.

„Svo náttúrulega skilst mér að restin megi alveg hanga áfram. Þau mega alveg hanga eins lengi og þau geta fyrir mér,“ segir hann að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×