Innlent

Til­kynnt um slags­mál þar sem öxi var beitt

Kjartan Kjartansson skrifar
Vitni í Grafarvogi könnuðust ekki við að öxi hefði verið beitt í slagsmálum þar þegar lögreglumenn komu á vettvang. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
Vitni í Grafarvogi könnuðust ekki við að öxi hefði verið beitt í slagsmálum þar þegar lögreglumenn komu á vettvang. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/Getty

Tveir menn voru handteknir eftir að lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slagsmál og að maður veittist að fólki með öxi í Grafarvogi. Lögregla telur að öxinni hafi ekki verið beitt gegn fólki á vettvangi.

Tilkynningin um slagsmálin eru sögð hafa verið óljós í dagbók lögreglunnar. Ekki kemur fram hvenær hún barst en dagbókin nær alla jafna yfir útköll í gærkvöldi og í nótt. Vitni á vettvangi hafi ekki kannast við að öxi hafi verið beitt en tóku eftir manni sem féll utan í bifreið. Henni var ekið af vettvangi þegar lögreglumenn komu á vettvang.

Lögreglan stöðvaði för bifreiðarinnar skömmu síðar og handtók tvo menn. Þeir voru vistaðir í fangaklefa á meðan lögregla rannsakar málið. Fullyrt er í dagbókarfærslu lögreglunnar að öxinni hafi ekki verið beitt gegn neinum á vettvangi.

Í Kópavogi var tilkynnt um mögulega fíkniefnasölu ásamt lýsingu á þeim grunaða. Lögreglumenn fundu meintan fíkniefnasala sem tók við fótanna þegar hann varð þeirra var. Lögreglumenn hlupu hann uppi og handtók vegna gruns um sölu og dreifingu fíkniefna. Maðurinn var vistaður í fangaklefa.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×