Innlent

Gríðar­legur hiti og eldurinn erfiður viður­eignar

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Heimir Már Pétursson skrifa
Slökkviliði barst útkall um klukkan tvö í nótt en eldurinn var ekki slökktur fyrr en um klukkan átta í morgun.
Slökkviliði barst útkall um klukkan tvö í nótt en eldurinn var ekki slökktur fyrr en um klukkan átta í morgun. Vísir/Egill

Gríðarlegur hiti og eldur var í Grímsnesi GK-555, netabáti sem brann í Njarðvíkurhöfn í nótt og í morgun. Varaslökkviliðsstjóri segir eldinn hafa verið gríðarlega erfiðan við að etja. Þá hafi karlmaður sem lést í brunanum ekki verið með lífsmarki þegar slökkvilið náði að koma honum út úr skipinu.

„Við fyrstu tilkynningu sjáum við að það er tilkynnt um eld í skipi í Njarðvíkurhöfn sem sé sirka 200 tonna netabátur. Þegar fyrsti dælubíll kemur á staðinn sér hann strax að það er mjög mikill hiti og eldur í skipinu þannig að ákveðið er að kalla út allt lið Brunavarna Suðurnesja,“ segir Sigurður Skarphéðinsson varaslökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Suðurnesja. 

Klippa: Skipsbruni í Njarðvík

Lögregla hafi flutt einn, sem komst út að sjálfsdáðum, á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Annar, sem var um borð í skipinu ögn lengur, hafi verið fluttur þangað af sjúkrabíl en um hálftíma síðar á Landspítalann í Fossvogi. 

Sigvaldi Hólmgrímsson, skipstjórinn á Grímsnesi, greindi frá því í viðtali við fréttastofu að sá sem var fluttur á Landspítala hafi verið með mikið brunasár á baki og sé nú haldið sofandi. Þá hafi öll áhöfnin, samtals sjö skipverjar, verið umborð í skipinu þegar eldurinn kviknaði en fjórir hafi komist út hratt og örugglega.

„Þá liggur fyrir að þriðji aðilinn er um borð. Aðstæður voru töluvert erfiðar. Reykköfunarteymi fer inn um lúgu og finna mannin á millidekkinu og koma honum að lúgunni. Síðan er töluverð vinna við að ná manninum upp. Það þurfti að hífa hann upp á dekkið. Þegar hann er kominn upp eru hafnar endurlífgunartilraunir á manninum sem því miður tókust ekki,“ segir Sigurður. 

Sigurður Skarphéðinsson, varaslökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Suðurnesja, segir slökkvistarfið hafa verið mjög erfitt.Vísir/Egill

Maðurinn hafi verið úrskurðaður látinn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Sigvaldi sagði í samtali við fréttastofu fyrr í morgun að maðurinn sé pólskur og hafi starfað hjá honum í um áratug en búið mun lengur hér á landi. Hann láti eftir sig eiginkonu og unglingssson í Póllandi. 

Sigurður segir eldinn hafa verið mjög erfiðann við að fást. Hitamyndavélar hafi mælt eldinn um 500 gráðu heitan. 

Slökkvilið er enn við vinnu í höfninni.Vísir/Egill

„Eldur í skipun er einn sá erfiðari sem við eigum við að etja. Sérstaklega vegna mikils hita sem skapast: Stálið og það er alltaf erfitt að ventílera svona skip og koma hitanum í burtu. Það var rosalega mikill hiti allan tíman og þeir áttu í töluverðum erfiðleikum með að koma honum í burt. Þeir náðu að opna stjórnborðslúguna og þá náðu þeir aðeins að ventílera skipið og komast að eldinum,“ segir Sigurður.

Enn sé óvíst hvar eldurinn kviknaði en eldur hafi logað út um alla glugga í brúnni. Eftir að slökkvistarf hófst hafi skipið farið að halla talsvert á bakborða.

Mikill eldur var í skipinu.Vísir/Egill

„Þá var hleypt úr tönkum til að rétta skipið af og svo var ákveðið að færa skipið innar í höfnina. Í öryggisskyni var sett flotgirðing í kring ef það kæmi til mengun frá skipinu. Slökkvistarfið stóð eiginlega til alveg átt í morgun. Það er enn verið að athuga með glæður og nú verið að dæla úr skipinu til að létta á því.“


Tengdar fréttir

Einn lést þegar bátur brann í Njarð­víkur­höfn í nótt

Einn lést þegar bátur brann í Njarðvíkurhöfn í nótt. Sjö voru um borð þegar eldurinn kom upp og þurfti að flytja tvo þeirra á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Endurlífgunartilraunir á þeim þriðja báru ekki árangur. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×