Fótbolti

Jafnt í Íslendingaslag og Sævar Atli lagði upp

Smári Jökull Jónsson skrifar
Arnór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir IFK Norrköping í dag.
Arnór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir IFK Norrköping í dag. Vísir/Getty

Arnór Sigurðsson og Arnór Ingvi Traustason voru báðir í byrjunarliði IFK Norrköping sem gerði 1-1 jafntefli við Aron Bjarnason og félaga hans í Sirius í sænska boltanum í dag.

Fyrsta umferð sænska boltans í er fullum gangi en þrír Íslendingar eru á mála hjá IFK Norrköping. Auk Arnórs og Arnórs Trausta kom Andri Lucas Guðjohnsen inn sem varamaður í dag líkt og Aron Bjarnason hjá Sirius.

Gestirnir úr Sirius komust yfir á lokasekúndum fyrri hálfleiks þegar Ander Alsanati skoraði. Staðan í hálfleik var 1-1 en Victor Lind náði að jafna fyrir IFK Norrköping í síðari hálfleiknum. Andri Lucas kom inn á á 70. mínútu og Aron hjá Sirius þegar ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma.

Þeim tókst hvorugum að skora og lokatölur leiksins í dag 1-1.

Í Danmörku var Aron Sigurðarson í liði Horsen sem tapaði illa á heimavelli gegn Álaborg. Álaborg lyfti sér þar með uppfyrir Lyngby úr botnsætinu og minnkaði forskot Horsens sem situr í síðasta örugga sæti deildarinnar.

Aron Sigurðarson lék í sextíu og fimm mínútur í framlínu Horsens.

Sævar Atli Magnússon lagði upp mark fyrir Lyngby í 1-1 jafntefli liðsins á heimavelli gegn Silkeborg. Alfreð Finnbogason og Kolbeinn Finnsson voru líkt og Sævar Atli í byrjunarliði Lyngby sem lenti undir strax á fyrstu mínútu leiksins en jafnaði aðeins þremur mínútum síðar.

Mörkin urðu ekki fleiri og Lyngby því enn í fallsæti, sex stigum á eftir Horsens og einu á eftir Álaborg en tvö neðstu liðin falla.

Kolbeinn Finnsson var tekinn af velli á 77. mínútu hjá Lyngby og þá fór Alfreð Finnbogason meiddur af velli á 57. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×