Allt galopið fyrir seinni leikinn í Lundúnum

Bukayo Saka með boltann í leiknum í Portúgal í kvöld.
Bukayo Saka með boltann í leiknum í Portúgal í kvöld. Vísir/Getty

Arsenal og Sporting skildu jöfn þegar liðin mættust í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Einvígið er galopið fyrir seinni leikinn í Lundúnum.

Arsenal hefur komið mörgum á óvart í vetur og leiðir ensku deildina, fimm stigum á undan Manchester City. Þeir tóku hins vegar ekki þátt í Meistaradeildinni í vetur en ætla sér augljóslega ekki að missa af keppni þeirra bestu í enn eitt skiptið.

Leikurinn í Portúgal í kvöld var fjörugur og skemmtilegur á að horfa. Arsenal byrjaði betur og William Saliba kom Skyttunum yfir á 22.mínútu með skalla eftir hornspyrnu Fabio Vieira.

Heimamönnum tókst hins vegar að jafna fyrir hlé. Þar var að verki Goncalo Ignacio með marki sem svipaði mjög til marks Saliba. Staðan 1-1 í hálfleik.

Heimamenn náðu síðan forystunni í upphafi síðari hálfleiks. Arsenal tapaði þá boltanum á miðjunni og fyrirgjöf Esgaio náði alla leið til Paulinho sem skoraði auðveldlega. 

En Adam var ekki lengi í paradís heimaliðsins. Skömmu eftir að áðurnefndur Paulinho hafði klúðrað dauðafæri fyrir Sporting náði Arsenal að jafna með heppnismarki. Granit Xhaka reyndi þá sendingu inn á teiginn sem breytti um stefnu af Hidemasa Morita og lak í nærhornið.

Bæði lið náðu að ógna á síðustu mínútunum en tókst ekki að bæta við mörkum. Arsenal fer því með ágæta stöðu í síðari leikinn á Emirates-vellinum sem fer fram eftir viku.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira