Bíó og sjónvarp

E­veryt­hing E­verywhere All At Once ó­tví­ræður sigur­vegari SAG

Árni Sæberg skrifar
Leikhópur Everything Everywhere All At Once tók nokkrar styttur með sér heim í gær.
Leikhópur Everything Everywhere All At Once tók nokkrar styttur með sér heim í gær. Frazer Harrison/Getty

Verðlaunahátíð Stéttarfélags bandarískra leikara (SAG) var haldin í gærkvöldi. Leikhópur kvikmyndarinnar Everything Everywhere All At Once fór með sigur af hólmi með því að vinna til ferna verðlauna.

SAG-verðlaunin eru almennt talin einn helsti fyrirboði þess sem koma skal á uppskeruhátíð kvikmyndabransans vestan hafs, sjálfum Óskarsverðlaununum. Því skyldi engan furða að Everything Everywhere All At Once, sem hlotið hefur flestar tilnefningar til Óskarsverðlauna, hafi hlotið flest verðlaun í gærkvöldi.

Leikhópur myndarinnar hlaut verðlaun fyrir besta leikhópinn, Michelle Yeoh fyrir besta leik í aðalhlutverki kvenna, Ke Huy Quan fyrir besta leik í aukahlutverki karla og Jamie Lee Curtis fyrir besta leik í aukahlutverki kvenna.

Brendan Fraser hlaut verðlaun fyrir leik í aðalhlutverki karla fyrir The Whale. Hann er af mörgum talinn líklegur til að hreppa sína fyrstu styttu á Óskarnum í mars.

Brendan Fraser er talinn líklegur til afreka á Óskarnum.Kevin Winter/Getty

Af sjónvarpshluta verðlaunanna er það helst að frétta að The White Lotus hlaut verðlaun fyrir besta leikhóp í dramaþáttaröð og Jennifer Coolidge hlaut verðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki kvenna í sömu þáttum.

Jennifer Coolidge átti gott kvöld í gærkvöldi.Frazer Harrison/Getty

Sigurvegarar SAG 2023:

Hér að neðan má sjá lista yfir alla sem hluti tilnefningu og sigurvegara SAG-verðlaunanna árið 2023.

Leikhópur kvikmyndar:

Babylon

The Banshees of Inisherin

Everything Everywhere All at Once

The Fabelmans

Women Talking

Aðalhlutverk karla:

Austin Butler, Elvis

Colin Farrell, The Banshees of Inisherin

Brendan Fraser, The Whale

Bill Nighy, Living

Adam Sandler, Hustle

Aðalhlutverk kvenna:

Cate Blanchett, Tár

Viola Davis, The Woman King

Ana de Armas, Blonde

Danielle Deadwyler, Till

Michelle Yeoh, Everything Everywhere All at Once

Aukahlutverk karla:

Paul Dano, The Fabelmans

Brendan Gleeson, The Banshees of Inisherin

Barry Keoghan, The Banshees of Inisherin

Ke Huy Quan, Everything Everywhere All at Once

Eddie Redmayne, The Good Nurse

Aukahlutverk kvenna:

Angela Bassett, Black Panther: Wakanda Forever

Hong Chau, The Whale

Kerry Condon, The Banshees of Inisherin

Jamie Lee Curtis, Everything Everywhere All at Once

Stephanie Hsu, Everything Everywhere All at Once

Áhættuleikhópur kvikmynda:

Avatar: The Way of Water

The Batman

Black Panther: Wakanda Forever

Top Gun: Maverick

The Woman King

Leikhópur í dramaþáttum:

Better Call Saul

The Crown

Ozark

Severance

The White Lotus

Leikhópur í gamanþáttum:

Abbott Elementary

Barry

The Bear

Hacks

Only Murders in the Building

Aðalhlutverk karla í sjónvarpskvikmynd eða stuttri þáttaröð:

Steve Carell, The Patient

Taron Egerton, Blackbird

Sam Elliott, 1883

Paul Walter Hauser, Blackbird

Evan Peters, Dahmer

Aðalhlutverk kvenna í sjónvarpskvikmynd eða stuttri þáttaröð:

Emily Blunt, The English

Jessica Chastain, George & Tammy

Julia Garner, Inventing Anna

Niecy Nash, Dahmer

Amanda Seyfried, The Dropout

Aðalhlutverk karla í dramaþáttaröð:

Jonathan Banks, Better Call Saul

Jason Bateman, Ozark

Jeff Bridges, The Old Man

Bob Odenkirk, Better Call Saul

Adam Scott, Severance

Aðalhlutverk kvenna í dramaþáttaröð:

Jennifer Coolidge, The White Lotus

Elizabeth Debicki, The Crown

Julia Garner, Ozark

Laura Linney, Ozark

Zendaya, Euphoria

Aðalhlutverk karla í gamanþáttaröð:

Anthony Carrigan, Barry

Bill Hader, Barry

Steve Martin, Only Murders in the Building

Martin Short, Only Murders in the Building

Jeremy Allen White, The Bear

Aðalhlutverk kvenna í gamanþáttaröð:

Christina Applegate, Dead to Me

Rachel Brosnahan, The Marvelous Mrs. Maisel

Quinta Brunson, Abbott Elementary

Jenna Ortega, Wednesday

Jean Smart, Hacks

Áhættuleikhópur í sjónvarpsþáttaröð:

Andor

The Boys

House of the Dragon

Lord of the Rings: The Rings of Power

Stranger Things






Fleiri fréttir

Sjá meira


×