Fótbolti

Lewandowski skammaði Ansu Fati inni í klefa eftir tapið á Old Traf­ford

Smári Jökull Jónsson skrifar
Robert Lewandowski og Lisandro Martinez berjast um boltann í leiknum á fimmtudag.
Robert Lewandowski og Lisandro Martinez berjast um boltann í leiknum á fimmtudag. Vísir/Getty

Manchester United sló Barcelona úr keppni í Evrópudeildinni eftir 2-1 sigur á Old Trafford á fimmtudagskvöldið. Eftir leikinn lenti liðsfélögunum Robert Lewandowski og Ansu Fati saman inni í klefa.

Leikur risanna tveggja í Evrópudeildinni á fimmtudag var beðið með mikilli eftirvæntingu enda spennan töluverð eftir 2-2 jafntefli í fyrri leiknum. Barcelona komst yfir í fyrri hálfleik á Old Trafford en United svaraði með tveimur mörkum og tryggði sér þar með sæti í næstu umferð keppninnar en spænsku risarnir eru úr leik.

Í Daily Mail er greint frá því að eftir leikinn á fimmtudag hafi stjörnuframherji Barcelona, Robert Lewandowski, látið ungstirnið Ansu Fati heyra það inni í klefa.

Lewandowski skoraði úr vítaspyrnu í leiknum en var augljóslega pirraður í síðari hálfleiknum þegar Fati náði boltanum á undan Lewandowski þegar fyrirgjöf kom sem ætluð var Pólverjanum öfluga.

Í klefanum eftir leik lét Lewandowski svekkelsi sitt bitna á Fati og þó svo að hann hafi ekki farið yfir strikið þá hafi hann bent Spánverjanum unga á að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem þetta gerðist.

Fati, sem kom inná sem varamaður í leiknum, tók til varna og sagðist ekki hafa séð Lewandowski og hafi því sjálfur ætlað að reyna að ná skalla á markið.

Lewandowski hefur leikið frábærlega á sínu fyrsta tímabili á Spáni og skorað 25 mörk í 30 leikjum fyrir Katalóníufélagið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×