Menning

Mætir heim til fólks og skapar list beint á veggina

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Listamaðurinn Unnar Ari Baldvinsson opnar sýninguna Skýjamyndir í Gallerí Gróttu fimmtudaginn 19. janúar klukkan 17:00.
Listamaðurinn Unnar Ari Baldvinsson opnar sýninguna Skýjamyndir í Gallerí Gróttu fimmtudaginn 19. janúar klukkan 17:00. Eyþór Árnason

„Ég hef alltaf upplifað mikla ró við það að horfa til himins,“ segir listamaðurinn Unnar Ari Baldvinsson. Hann opnar sýninguna Skýjamyndir í Gallerí Gróttu á morgun.

Á sýningunni verða yfir 40 verk sem Unnar Ari hefur unnið á mismunandi miðla á borð við krossvið og flashe, pappír, hör og akríl. Hann útskrifaðist árið 2013 frá Florence University of Arts á Ítalíu og hefur haldið fjölda einkasýninga og samsýninga, bæði hér heima sem og erlendis.

Síbreytileg ský

Unnar hefur verið þekktur fyrir málverk sem hann gerir af hringjum og segir hann fólk gjarnan rýna í verkin og spyrja hann hvað liggur að baki þeim.

„Til dæmis er mikið af fólki sem spyr mig hvort þetta sé tungl eða sól eða hvað þetta tákni. Ég titla myndirnar Hringur því fyrir mér er myndin bara það.“

Unnar Ari við störf.Hörður Sveinsson

Síðasta sýning sem Unnar Ari hélt var í Gallerí Port og segist hann mikið hafa velt fyrir sér litapallettu hafsins fyrir það.

„Svo langaði mig til að mála himininn, en samt ekki himininn, og hugsa svolítið um þessa litapallettu þar. Til dæmis hvað eitt ský getur verið ótrúlega breytilegt. Þess vegna ákvað ég að skíra þetta Skýjamyndir, því þetta eru einfaldlega bara skýjamyndir.“

Skýin heilla Unnar Ara en á minni verkum sýningarinnar eru skýin máluð beint á strigann.Unnar Ari

Hver er tilgangur flatarins?

Á sýningunni leikur Unnar Ari sér með fjölbreyttar útfærslur og takmarkar sig ekki við mynd í ramma.

„Ég hef mikið verið að leika mér með hugmyndina um hvað sé ramminn og hvað sé þessi flötur sem maður er að mála á.

Á einum vegg verða þrjátíu litlar myndir með mismunandi litum á borð við appelsínugulan, bláan og fjólubláan sem standa svolítið fyrir himininn og sólsetur. Svo er ég með nokkrar svolítið stærri myndir, í kringum 100 x 100 cm. Þar er ég að prófa að mála grunnflötinn beint á vegginn og ofan á það kemur útskorin tréplata sem er skýið. “

Því má segja að hugtakið veggjalist fái hér nýja merkingu. 

Stærri skýjamyndir Unnars Ara fá eins konar þrívíða mynd á sig. Grunnflöturinn er málaður á vegginn og svo er skýið gert úr við.Unnar Ari

Unnar Ari starfar líka sem grafískur hönnuður og segir að á því sviði þurfi hann mikið að hugsa um ákveðnar stærðir sem eru alltaf bundnar við ákveðinn ramma.

„Það er svolítið það sem ég er að pæla í, hvaða tilgangi þessi flötur sem maður setur verkið á gegnir. Hvort sem það er sett upp á vegg, í blaðið eða í sjónvarpið. 

Ef ég mála beint á vegg þá er veggurinn orðinn hluti af verkinu.“

Hann hefur svo séð fyrir sér að geta mætt heim til fólks sem festir kaup á þessum stærri verkum og málað grunnfleti á veggi hjá þeim. Skýið kemur svo ofan á það. 

„Ef fólk flytur þá myndi ég bara koma aftur.“

Himininn veitir enn ró

Eins og áður segir hefur Unnar Ari alltaf fundið mikla ró við það að horfa til himins og þá sérstaklega að upplifa það hvernig himininn getur verið eins og síbreytilegt málverk.

„Ég man þegar ég var svona fimmtán ára þá var mamma stressuð yfir einhverju og ég sagði við hana að hún ætti að prófa að horfa bara á himininn og finna ró út frá því.

Þá svaraði hún mér eitthvað í þá áttina að segja bíddu þangað til þú ert orðinn fullorðinn til að segja þetta, eins og það væri ekki hægt að róast við það eftir að maður eldist.

En ég er orðinn fullorðinn og það er enn þannig að himininn veitir mér þessa ró. Nú er ég alltaf með dóttur minni að skoða skýin og litina.“

„Skýjamyndir eru skýjamyndir“

Í sýningartexta Unnars stendur meðal annars:

„Skýjamyndir eru skýjamyndir.

Brot af heilum himni.

Sneiðmynd af okkar eigin sjónarhorni

upp í geim af hreinum litum og formum.

Fantasíur og draumar.

Ský sem styðja hvort við annað,

vaxa og dafna á meðan að við útréttum.

Verkin eru skipulögð í kringum hvort annað en rýmið stjórnar vindáttinni.

Fletirnir á veggjunum skipa skýin sem sameinast í heilum himni.“

Eyþór Árnason

Unnar Ari vinnur verkin sín mikið í seríum þar sem myndirnar eru búnar til í kringum hver aðra. Síðastliðna sex mánuði hefur hann verið að undirbúa Skýjamyndir. Sýningin stendur til 11. febrúar næstkomandi. Nánari upplýsingar má finna hér


Tengdar fréttir

„Það tengja allir við sína sundlaug“

Myndlistarmaðurinn Unnar Ari opnar sýninguna Sundform á HönnunarMars þann fjórða maí næstkomandi. Á sýningunni verða 105 prentverk eftir Unnar af hverri einustu sundlaug landsins. Blaðamaður heyrði í Unnari og fékk að heyra nánar frá þessu skapandi verkefni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×