Fótbolti

Magnað dróna­mynd­band af heims­frægu torgi fullu af fagnandi Argentínu­mönnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fræga risagatan í Buenos Aires var troðfull af fólki að fagna titlinum.
Fræga risagatan í Buenos Aires var troðfull af fólki að fagna titlinum. AP/Rodrigo Abd

Argentínumenn voru búnir að bíða í 36 ár eftir heimsmeistaratitlinum og það þurfti ekkert að pína þá mikið út á götu til að fagna honum í gær.

Argentínumenn unnu Frakklandi í vítakeppni í úrslitaleiknum eftir að hafa misst niður bæði 2-0 og 3-2 forystu. Argentínumenn nýttu öll vítin sín og þurfti ekki að taka fimmtu spyrnu sína.

Staðurinn til að vera á í gær var án efa Buenos Aires, stærsta borg Argentínu.

Það mátti heyra það út um alla borg þegar Gonzalo Montiel skoraði úr síðustu vítaspyrnunni og eftir leikinn voru hundruð þúsunda mætt á heimsfræga Plaza de la República og 9. júlí götuna þar sem óbelíska súlan er.

Hér fyrir neðan má sjá magnað drónamyndband af þessu heimsfræga torgi fullu af fagnandi Argentínumönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×