Neymar jafnaði opinbert markamet Pelé Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. desember 2022 23:00 Neymar fagnaði vel og innilega þegar hann kom Brasilíu yfir gegn Króötum. Youssef Loulidi/Fantasista/Getty Images Neymar jafnaði í dag opinbert markamet goðsagnarinnar Pelé fyrir brasilíska landsliðið í knattspyrnu. Neymar skoraði mark Brasilíu er liðið féll úr leik á heimsmeistaramótinu gegn Króatíu eftir vítaspyrnukeppni.
Neymar kom brasilíska liðinu í forystu í uppbótartíma fyrri hálfleiks framlengingar í leik Brasilíu og Króatíu í dag. Markið dugði þó skammt því Króatar jöfnuðu metin snemma í síðari hálfleik og höfðu svo betur í vítaspyrnukeppni, 4-3. Mark Neymars var hans 77. fyrir brasilíska landsliðið. Hann er því orðinn markahæsti leikmaður liðsins frá upphafi, ásamt goðsögninni Pelé sem skoraði einnig 77 mörk á sínum landsliðsferli. Pelé sjálfur, sem og brasilíska knattspyrnusambandið, vilja þó meina að Neymar eigi enn nokkuð í land til að jafna markametið. Samkvæmt þeim skoraði Pelé 95 mörk fyrir landsliðið á sínum tíma. Nokkur þeirra voru vissulega skoruð fyrir brasilíska landsliðið, en í vináttuleikjum gegn félagsliðum. Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA viðurkennir þó aðeins landsliðsmörk sem skoruð eru í leikjum milli tveggja þjóða og því er Neymar búinn að jafna opinbert markamet goðsagnarinnar. Neymar hefur þó þurft töluvert fleiri leiki til að skora mörkin 77, en hann hefur leikið 124 leiki fyrir brasilíska landsliðið á meðan Pelé lék 92 á sínum tíma. Báðir eiga þeir þó langt í land til að ná markahæsta leikmanni Brasilíu frá upphafi, en Marta hefur skorað 115 mörk fyrir kvennaliðið í 171 leik.
HM 2022 í Katar Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Sjá meira