Bíó og sjónvarp

Ræddu um fyrsta stefnu­mót sitt og fyrstu kynni Meg­han og Katrínar

Bjarki Sigurðsson skrifar
Fyrstu þættir raunveruleikaþáttaraðar Harry Bretaprins og Meghan Markle voru sýndir í morgun.
Fyrstu þættir raunveruleikaþáttaraðar Harry Bretaprins og Meghan Markle voru sýndir í morgun. WireImage/Karwai

Fyrstu þrír þættirnir af nýjum raunveruleikaþáttum um líf Harry Bretprins og eiginkonu hans, leikkonunnar Meghan Markle, voru birtir á Netflix í morgun. Breskir miðlar fjalla í dag um fimm sérstök atriði úr þáttunum sem vöktu mikla athygli. 

Þættirnir bera heitið Harry & Meghan en fyrstu þættirnir voru birtir í morgun og verða næstu þrír aðgengilegir á Netflix eftir viku. Þættirnir eru aðgengilegir á Netflix á Íslandi.

Mikill áhugi er á þáttunum, þá sérstaklega í Bretlandi, en þau hjónin eru bæði afar umdeild þar í landi. Harry er yngri sonur Karls III Bretlandskonungs. Hann sagði sig frá öllum konunglegum skyldum sínum stuttu eftir að hann og Meghan gengu í hjónaband. 

Fimm hlutir úr fyrstu þremur þáttunum hafa vakið sérstaka athygli meðal bresku götupressunnar, The Sun, Mirror, Daily Mail og fleiri miðla. Götumiðlarnir hafa verið einstaklega gagnrýnir á líf hjónanna í gegnum tíðina. 

Það fyrsta sem vakti athygli fólks var þegar Harry hélt því fram að hann hafi gefið upp allt sem hann átti til þess að vera með Meghan. Þessi orð lét hann falla stuttu eftir að hann sagði sig frá öllum konunglegum störfum. Næsta atriði sem fjallað er um er þegar Harry segir Meghan ekki eiga föður stuttu fyrir brúðkaup þeirra. Eins og frægt er orðið er samband þeirra feðgina ekki gott en hann hefur verið afar gagnrýninn í fjölmiðlum á dóttur sína sem hætti í leiklist til að giftast Harry. 

Bretar ekki mikið fyrir knús

Það þriðja sem fjallað er um er að þau hjónin sýndu áður óséðar myndir af börnum sínum Archie og Lilibet. Lilibet hafa þau haldið fjarri sviðsljósinu síðan hún fæddist í júní á síðasta ári. 

Meghan með syni þeirra Harrys, Archie, árið 2019.Getty/Toby Melville

Fjórða atriðið voru orð Meghan um Katrínu, svilkonu sína og eiginkonu Vilhjálms Bretaprins. Hún ræddi um augnablikið þegar þær hittust í fyrsta sinn. 

„Ég var berfætt í rifnum gallabuxum. Ég er mikið fyrir knús, ég hef alltaf verið mikið fyrir knús. Ég vissi ekki að það gæti verið erfitt fyrir marga Breta,“ segir Meghan. 

Katrín og Meghan Markle.Getty/Karwai Tang

Því næst gefur hún í skyn að hún hafi ávallt talið að þau formlegheit sem áttu sér stað fyrir framan almenning yrðu sett til hliðar þegar fólk er í einrúmi. En svo er ekki. Formlegheitin eiga við í hverju einasta spjalli við hvern sem er, sama hversu margir eru í kring. 

Síðasta atriðið sem breska pressan bendir á er að aðdáendur hafi fengið sjaldgæfa innsýn inn í húsið sem Harry og Meghan fluttu í eftir að þau sögðu skilið við konungsfjölskylduna. Um er að ræða risastórt einbýlishús sem aðdáendur hafa lengi beðið eftir að fá að sjá almennilega. 

Fyrsta stefnumótið

Hjónin hafa lofað því að segja frá ástarsögu sinni í næstu þáttum og hafa aðdáendur fengið að sjá smá hluta hennar. Þau hafa sagt frá því þegar þau voru á leið á sitt fyrsta stefnumót. Harry lét Meghan bíða heillengi eftir sér en hann var fastur í umferð á meðan. Hún hélt um tíma að hann væri týpan sem lætur stelpur bíða eftir sér til að vera töffari en Harry vill meina að svo sé ekki. Hann hafi verið afar stressaður og pirraður á því að vera svona seinn. 

Breska konungsfjölskyldan hefur hingað til neitað að tjá sig um efni þáttanna en í stiklum sem birtar voru fyrr á árinu má sjá hjónin gagnrýna fjölskylduna. Þau atriði voru ekki sýnd í þáttunum í morgun. 


Tengdar fréttir

Ævi­saga „vara­skeifunnar“ kemur út 10. janúar

Ævisaga Harry Bretaprins og hertoga af Sussex er væntanleg í verslanir 10. janúar næstkomandi. Bókin ber titilinn „Spare“, sem mætti þýða sem „Varaskeifa“ á íslensku en hennar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu.

Pabbi Meg­han Mark­le vill í við­tal við Opruh

Thomas Markle, faðir Meghan Markle hertogaynju af Sussex, hefur óskað eftir því að fara í viðtal hjá Opruh Winfrey til þess að segja sína hlið af erjum hans við Meghan. Markle afhenti Opruh sjálfur bréf, þar sem hann óskaði eftir viðtalinu.

Meghan Markle: „Ég vildi ekki lifa lengur“

Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, segir að breska konungsfjölskyldan hafi skapað svo rasískt andrúmsloft að hún hafi á tímabili verið í sjálfsvígshugleiðingum á meðan hún gekk með fyrsta barn og sitt og Harrys Bretaprins, Archie.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×